Náttúrufræðingurinn - 1949, Side 43
Ingimar Óskarsson:
/
Nýjungar úr gróðurríki Islands
1. Mjög fágætur bastarður fundinn i Reyðarfirði 1927.
í grasaför minni á Austfjörðum 1927, fann ég í Njörvadalsárgili
■mót vestri plöntu, er ég áleit, að bæri að telja til Orchis-ættkvíslar-
innar, en krónan var einlit, gulhvít að lit, blómskipunin styttri og
laufhlöðin hlettlaus. Áleit ég lielzt, að hér væri um að ræða nýtt af-
hrigði af brönugrasi (Orchis maculata). (Sjá ritgerð mína: En botan-
isk Rejse til Öst-Island samt Reyðarfjörðurs Karplanteflora. Bot.
Tidskr. 40. hd. 5. H., 1929). Frekari athugun var svo ekki gerð á
eintaki þessu, fyrr en s.l. vetur, að það var sent fyrir milligöngu dr.
Áskels I.öve til hollenzks sérfræðings í brönugrösum, dr. Vermeulen.
Niðurstaða þeirrar rannsóknar varð sú, að hér væri um að ræða
sjaldgæfan hastarð: Orchis maculata X Coeloglossum viride,1 sem
hvorki liefnr fundizt fyrr né síðar hér á landi og er aðeins til á örfá-
um stöðum í Evrópu, t. d. á 2 stöðum í Noregi og í Risafjöllum. Ein-
tök, sem til eru frá Risafjöllum, eru þó allólík hinni íslenzku plöntu,
og gæti það stafað af því, að bæði íslenzku foreldrin, brönugrasið og
harnarótin, eru Sennilega bæði undirtegundir (suhspecies) hér á
landi og framleiða því afkvæmi öðruvísi útlits en þýzku foreldrin.
2. Lónajurt (Ruppia maritima L.) fundin á nýjum stað.
Sumarið 1901 fann dr. Helgi Jónsson grasafræðingur lónajurt i
Lónsfirði á Suðausturlandi, og hafði hún þá ekki fundizt hér áður.
Síðan hefur enginn orðið hennar var fyrr en s.l. sumar, að ég rakst á
hana á grasaför minni í Dalasýslu sunnanvert við Hvammsfjarðar-
hotn 30. júlí.
1) Sumir grasafræðingar í Skandinavíu nefna bastarð þennan: Orchi-coeloglossum
conigerum (Norm.).