Náttúrufræðingurinn - 1949, Síða 45
NÝJUNGAR ÚR GRÓÐURRÍKI ÍSLANDS
187
Bastarðnr brönugrass og barnarótar.
Agropyron Smithii.
hálfflatvaxið, um 6 cm að lengd (11 — 13 cm á húsapunti), gulgrænt
að lit eða stundum með fjólubláum blæ. Smáöxin gisblóma en þétt-
stæð, stundum þau allra neðstu mjög gisstæð eða aðskilin frá aðal-
axinu, tvíliliða, en axfóturinn er undinn til hliðar, svo að þau sýnast
a. m. k. 3-hliða. Blómin venjulega 5—6 í hverju smáaxi. Agnirnar
týtulausar. Axagnirnar hárlausar, 5-tauga, lensulaga, oft yddar, stinn-
ar og seigar, með innorpnum röndum, örmjóum himnufaldi og ei-
lítið styttri en blómagnirnar. Neðri blómagnirnar odddregnar 5-
tauga. Blómgast í ágúst.
Heimkynni herpuntsins er eingöngu Norður-Ameríka. Vex hann
í Kaliforníu norður til Washington og nær austur á bóginn til Kan-
sas og Michigan. Finnst einnig í Alaska, en aðeins sem slæðingur.
Herpuntinn er hægt að fella inn í greiningarlykil villihveitisins
á bls. 38 í 3. útg. af Flóru íslands, og liti þá lykillinn út á eftirfar-
andi hátt:
I. Jarðstöngullinn skriðull.
A. Blöðin dökkgræn. Smáöxin gisstæð. Punturinn langur og
mjór. A. repens.