Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1949, Side 49

Náttúrufræðingurinn - 1949, Side 49
NYKURRÓSIR 191 þeirra blómum bóndarósanna, sem hér eru sums staðar ræktaðar í görðum. Indverska lótusblómið blda (Nymphaea stellata) er einnig ræktað. Sömuleiðis gýgjarblómið fagra (N. gigantea) frá Astralíu, sem ber himinblá, angandi blóm. Egypzka lótusblómið helga (N. lotus) er frægt og hefur verið greypt á byggingar í Egyptalandi fyrir þúsundum ára. Það hefur kringlótt blöð og ilmandi, hvít blóm, 12—16 cm í þvermál, opin frá kl. 6 síðdegis til kl. 10 að morgni. Ýmis afbrigði eru ræktuð til skrauts og fjöldi annarra lótusblóma. Þykja þau jafnan fögur og einkennileg, líkt og nykurrósirnar. Spurningar og svör Spurt í bókinni „Blárra tinda blessað land“ eftir Árna Óla er kafli, senr nefnist Reykja- lundur. í kafla þessum er sagt nokkuð frá athugunum Bjarnar Bjarnarsonar í Grafar- holti á lifnaðarháttum álsins. Þar er staðháttum við Varmá lýst nokkuð, og svo segir: „Milli livolsins (Reykjahvols) og árinnar (Varmár) var mýrarver. Þar varð að gera brú með skurðum til hliða, þá er sveitargatan var lögð. Síðar, er ég var að hreinsa og dýpka skurði þessa, mokaðist upp aurleðja volg og mjúk eins og skyr, blár leir, er moraði af álaormum, ca. 10—15 cm að lengd, mjóum og glærum, samlitum hinum bláa leir. Þarna var sýnilega álaklak." Nú langar ntig til að spyrja, hvort ekki sé hér dregin röng ályktun af rnergð álanna Jrarna, hvort hér sé ekki aðeins að ræða um staðfestingu á kenningu Bjarna Sæmunds- sonar, að állinn sæki hér á landi mjög í volga læki. Einnig langar mig til að vita, hvort nokkrar nýjar rannsóknir bendi til þess, að kenningar Johs: Schmidts, um að allur evrópski állinn hryggni í Sargassóhafinu, séu ekki réttar. Gunnar Markússon, Hafnarfirði. SvaraS Sem svar við þessari spurningu vil ég benda á grein Árna Friðrikssonar: Undrasaga álsins, sem birtist í 12. árg. Náttúrufr., 1942, bls. 4—15. í þessari grein er hinum einkennilegu lífsháttum álsins lýst rækilega, og þar er ennfremur skýrt frá hinum merkilegu rannsóknum Prof. Johs. Schmidts, en honum tókst fyrstum manna að finna hrygningarstöðvar álsins í Sargassóhafinu. Allar síðari rannsóknir hafa staðfest kenn- iugar Johs. Schmidts, og ekkert hefur enn komiö fram, sem gefur minnstu ástæðu til að halda, að þær séu ekki á fullum rökum reistar. í skurðunum við Varmá getur því ekki hafa veiið tun álaklak að ræða. F. G.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.