Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1950, Qupperneq 42

Náttúrufræðingurinn - 1950, Qupperneq 42
Thorvald S0rensen: Guðni Guðjónsson, mag. scient. 18. júlí 1913 — 31. desember 1948 Þó að áður hafi birzt ágæt eftirmæli eftir Guðna Guðjónsson, grasafræðing, bæði í þessu riti (sbr. 1. h. 19. árg.) og öðrum íslenzkum, tel ég vel farið, að eftirfarandi grein uin sama efni komi einnig fyrir sjónir íslenzkum lesendum. Hún birtist í Botanisk Tidsskrift, 48. bindi, 3. hefti, scm út er gefið af Dansk Botanisk Forening. Höfundur hennar, dr. phil. Thorvald Sprcnsen, var náinn samstarfsmaður Guðna heitins, og mun vera allra manna færastur að dæma um vísindastörf hans. Þess vegna réðst ég í að snúa greininni á íslenzku, en veittist það fullstrembið, því að hún er morandi af hugtökum, sem íslenzk tunga á ekki orð yfir, fremur en önnur mál. Að þessu sinni bcygi ég mig fyrir hinu rótgróna almenningsáliti og sneiði hjá al- þjóðlcgum fræðiorðum. En fyrir bragðið er þýðingin ekki nákvæm. Guðm. Kj. Guðni átti heima í Reykjavík, en á sumrin var hann frá blautu barnsbeini smali í sveit. Við einveru á iieiðum úti kviknaði sú oiur- ást hans, er aldrei fölskvaðist síðan, til íslenzkrar náttúru, til mikil- leika liennar, til grjóts og gróðurs. Og á æskuárunum, er Jiann var nemandi í Menntaskólanum í Reykjavík, stundaði hann einnig gjarna í sumarleyfununr ýmiss konar vinnu í sveit eða brá sér í fræðsluferðir með rektor sínum, hinum áfjáða náttúruskoðara Páhna Hannessyni. En þeim var ekki aðeins sameiginlegur áhugi á nátt- úrunni, heldur einnig tilhneiging til starfa að félagsmálum og stjórnmálum. — Árið 1933 fór Guðni, nýbakaður stúdent, lil Kaujr- mannahafnar til að nema grasafræði, og voru það lians ráð, én ckki vandamanna. Auðséð var, að í fyrstu samlagaðist liann ekki vel dönskum námsfélögum sínum. Honum fannst hann vera fullorðinn maður í hópi skóladrengja, og það mun þeim ekki heldur hafa líkað. Á háskólaárunum, sem enduðu á magistersprófi 1943, komst hann í náin kynni við landslag Danmerkur, eins og sögueyjarinnar áður. Með tjald og grasatínu lijólaði hann um landið þvert og endilangt. — Rannsóknir, sem hann hafði byrjað á íslenzkum maríustökkum, leiddu hann til athugana á hinni einæru Alchemilla (Aphanes) ar- vensis. Hylander hafði þá nýlega sýnt franr á, að innan þeirrar teg-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.