Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1950, Side 45

Náttúrufræðingurinn - 1950, Side 45
RITSTJORARABB Náttúrugripasaínið Eins og ýmsum lesenda Náttúrufræðingsins mun kunnugt skuld- batt Háskóli Islands sig til þess árið 1943 að reisa byggingu fyrir náttúrugripasafn á háskólalóðinni gegn því að fá happdrættið fram- lengt um 10 ára skeið. Ymsra ástæðna vegna hafa framkvæmdir um þessa byggingu dregizt á langinn. Þó hefur verið unnið nokkuð að undirbúningi hennar. Gunnlaugur Halldórsson arkitekt var ráðinn til að teikna bygginguna, og fór hann utan árið 1946, ásamt dr. Finni Guðmundssyni, til að kynna sér tilhögun og útlit nýjustu og ful.l- komnustu safnbygginga í Evrópu. Hann gerði síðan teikningar af safnbyggingu, sem Háskólaráð befur sanrþykkt. Á samsýningu arki- tekta og myndlistarmanna, sem haldin var í nýju Þjóðminjasafns- byggingunni í sambandi við listamannaþingið, gat að líta teikningar og líkan af hinu fyrirhugaða Náttúrugripasafni. Vakti útlit bygg- ingunnar og fyrirkomulag allt atbygli og hrifningu hinna dómbær- ustu manna. Jón Þorleifsson listmálari (Orri) skrifar í Morgunblað- ið m. a.: ,,Það nýstárlegasta við þessa byggingu og sem ég tók fyrst eftir er, live látlaus og einföld hún er að ytra útliti. Fegurð hennar liggur í hnitmiðuðu formi og samræmisföstum hlutföllum. Forðast er allt prjál, óþörf útskot eða boga, sent hafa annars verið nokkuð áberandi í byggingum hér og til vafasamrar prýði.“ Vonandi gefst tækifæri til að lýsa þessari byggingu nánar í einhverju af næstu heft- um Náttúrufræðingsins. Víst er um það, að ekkert er þýðingarmeira um bættan hag náttúrufræði og náttúrufræðirannsókna í landinu, en að þessi bygging komist upp sem fyrst. Bönnun minkaeldis í síðasta helti Náttúrufræðingsins birtist erindi það um náttúru- vernd, sem ég flutti síðastliðið haust á fundi þeim, er helgaðúr var 60 ára afmæli Náttúrufræðifélagsins. Ég hef orðið var við það síðan,

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.