Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1951, Page 17

Náttúrufræðingurinn - 1951, Page 17
ÞÆTTIR ÚR SÖGU NÁTTÚRUGRIl’ASAFNSINS 63 Hin fyrirhugaöa náttúrugripasafnsbygging samkv. uppdrœtti Gunnlaugs Halldórssonar. í sögu Hins íslenzka náttúrufræðifélags og náttúrugripasafnsins. Hið þýðingarmesta, sem gerzt hefur síðasta áratuginn í málefnum safns- ins, er að sjálfsögðu afhending safnsins til ríkisins og samningur náttúrufræðifélagsins við hás'kólann um, að hann taki að sér að reisa náttúrugripasafnsbyggingu á háskólalóðinni fyrir happdrættisfé. All- ir íslenzkir náttúrufræðingar og aðrir þeir, er íslenzkum náttúruvís- indum unna, bíða þess með óþreyju, að sti bygging rísi af grunni. Til bráðabirgða hefur náttúrugripasafnið fengið vinnustofur og geymslur í hinni nýju þjóðminjasafnsbyggingu, en sýningarsalurinn er enn í safnahúsinu við Hverfisgötu, og verður þar væntanlega, þangað til að hin fyrirhugaða náttúrugripasafnsbygging verður reist. Hið íslenzka náttúrufræðifélag hefur lrá upphafi, bæði með stofn- un náttúrugripasafnsins og með annarri starfsemi sinni, af veikum mætti reynt að gera íslendinga að sjálfstæðri menningarþjóð á sviði náttúruvísindanna. Þessi viðleitni hefur Iiorið misjafnan árangur, enda liafa lengst af fáir af áhrifamönnum og forsvarsmönnum þjóð- arinnar orðið til þess að styðja þessa viðleitni. Enn þyrpast erlendir vísindamenn til landsins á ári hverju til þess að rannsaka hvíta blett- inn á landabréfinu, sem ísland ómótmælanlega enn er náttúrufræði- lega séð. Við höfum nú það mörgum náttúrufræðingum á að skipa,

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.