Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1951, Síða 19

Náttúrufræðingurinn - 1951, Síða 19
Unnsteinn Stefánsson: Hafstraumar við Norðurland Inngangur Sjófræði er, eins og flestum mun kunnugt, sú fræðigrein, sem fæst við rannsóknir á hinum efnafræðilegu og eðlisfræðilegu eiginleikum sjávarins. í víðtækari merkingu getur haffræðin einnig náð til líf- efnafræðilegra rannsókna á sjálfum lífverum sjávarins. Þýðingar- mestar af þeim athugunum, sem gerðar eru á sjónum, eru mælingar á hitastigi og seltu, því að af þeim má draga ýmsar ályktanir um strauma, svo og um lífsskilyrði sjávarins á hverjum stað. Rannsóknir á næringarefnum sjávarins, súrefnismagni og sýrustigi (pH) eru einn- ig mikilsverðar, einkum ef þær eru svo skipulegar, að til verði at- huganaröð, sem nær yfir ákveðin svæði og ákveðin tímabil._ Skipulagðar sjórannsóknir voru fyrst framkvæmdar af íslend- ingum sjálfum svo nokkru nemi árið 1947, er Fiskideildin hóf söfn- un sjófræðilegra gagna, og hefur það síðan verið eitt aðalmarkmið rannsóknaleiðangranna, að fylgjast með ástandinu í sjónum um- hverfis landið. Sjórannsóknunum á árunum 1947—1948 stjórnaði dr. Hermann Einarsson, og hefur hann birt helztu niðurstöður rann- sóknanna á Norðurlandsmiðunum sumarið 1947 í yfirlitsgrein í Annales Biologiques (1947) 1949. Síðan 1949, er undirrituðum var falið að annast úrvinnslu sjófræðilegra gagna, hafa slíkar árlegar yfirlitsgreinar verið birtar á erlendum vettvangi. (Annales Biologi- ques (1948), 1950 og ibid. (1949), 1951). Hreyfingar sjávarins Sjórinn má heita á sífelldri hreyfingu. Aðeins á einstöku innilok- uðum hafsvæðum, þar sem neðansjávarhryggur (,,þröskuldur“) kem- ur í veg fyrir samgang við úthafið, getur myndazt kyrrstæður (stag- nant) botnsjór. Slíkt á sér stað í Svarta hafinu og sumum norsku fjörðunum. Á þessum stöðum er djúpsjórinn súrefnissnauður. Slík stöðnun er þó afar sjaldgæft fyrirbæri, en endurnýjun sjávarins fer Náttúrufræðingurinn, 2. h. 1951 5

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.