Náttúrufræðingurinn - 1951, Page 22
68
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
úmrósnin minnkandi með vaxandi fjarlægð frá botni. Loks munu
djúpbylgjur liafa í för með sér aukna lóðrétta blöndun.
Talsverðar breytingar verða á ástandi sjávarins með árstíðum. Á
sumrum, þegar yfirborðslögin hitna, verður æ meiri munur á eðlis-
þyngd efri og neðri laganna. Við það myndast mjög stöðugt ástand,
svo að blöndun í lóðrétta átt getur ekki auðveldlega farið fram.
Þetta er orsök hins svokallaða hitaskiptalags, sem oft er í sjónum á
sumrum, og kemur fram í því, að hitastigið fer lítið lækkandi fyrstu
10—25 metrana, en lækkar svo ört, oft 3—4° C á næstu 5 ihetrunum.
Misjafnt er þó, hversu skörp hitaskiptin eru, og venjulega liggur
hitaskiptalagið dýpra, er líður á sumarið. Mjög takmarkað plöntu-
líf er að jafnaði yfir skörpu hitaskiptalagi, þar eð plöntusvifið eyðir
fljótlega næringarforðanum, og endurnýjun verður nær engin gegn-
um hitaskiptalagið. Á veturna, þegar yfirborðslagið kólnar, verður
hins vegar eðlisþyngdarmunurinn á efri og neðri sjávarlögunum
miklu rninni, sjórinn blandast upp og geta yfirborðslögin jafnvel
sokkið til botns.
Sjóheildir íslandshafsins
Orðið sjóheild er hér látið tákna sjó með ákveðna eiginleika og
af ákveðnum uppruna. Samkvæmt þessari skilgreiningu má skipta
sjóheildum íslandshafsins, þ. e. hafsvæðisins milli íslands, Græn-
lands og Jan Mayen í 5 flokka:
1) Hlýsær (Atlantic water), sem hefur seltu yfir 35%c og er að
jafnaði tiltölulega hlýr (oftast yfir 4° C). Þessa sjávar gætir að meira
eða minna leyti fyrir norðan land og berst þangað sem grein af Irm-
ingerstraumnum.
2) Pólsær (Polar water), sem er kaldur og með lágt seltumagn (oft
undir 32%0). Þessi sjór berst með Austur-Grænlandsstraumnum suð-
ur með austurströnd Grænlands.
3) Svalsær (Arctic water), sem upprunalega er myndaður við
blöndun á pólsæ og hlýsæ. Þessi sjóheild er sumpart mynduð í Nor-
egshafinu og sumpart á mótum Irmingersjávarins og pólsjávarins fyr-
ir norðan ísland. Hitastig svalsævarins getur verið mismunandi, en
seltan liggur venjulega milli 34.6 og 34.9%c.
4) Botnsjór (Arctic Bottorn water), sem einkennist af nokkurn veg-
inn stÖðugu seltumagni, 34.90—34.94%c, og lutastigi undir 0° C.
Þessi sjóheild er mynduð að vetrinum við kólnun á yfirborðslögunt
svalsævarins á vissum svæðum í Noregsltafinu.