Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1951, Qupperneq 25

Náttúrufræðingurinn - 1951, Qupperneq 25
HAFSTRAUMAR VIÐ NORÐURLAND 11 barða. Undir svalsænum er svo botnsjórinn með hitastigi undir 0° C og seltu um 34.9%c. Neðra sniðið á 2. mynd sýnir straumhraðann, miðað við 800 metra dýpi í cm á sek., hornrétt á sviðið. Straumana hef ég reiknað út eftir eðlisþyngdardreifingunni. Við sjáum, að meginhluti hlýsævarins streymir til austurs nálægt kanti landgrunnsins og hraðin er mestur á um það bil 50 rnetra dýpi, meira en 10 cm á sek. Hraði Austur- Grænlandsstraumsins er mjög mikill við yfirborð, meira en|20 cm á sek. á St. 1172 og um 22 crn á sek. á yztu stöðinni. Gera má ráð fyr- ir, að straumhraðinn vaxi eitthvað, er nær dregur grænlenzka land- grunninu. Samkvæmt rannsóknum, er áður hafa verið gerðar í Græn- landshafinu, hefur straumhraðinn við yfirborð reynzt mestur 25— 35 cm á sek. Útbreiðsla hlýsœvar á Norðurlandsmiðunum Niðurstöður rannsóknanna 1947 og 1948 sýndu, að bæði eru ár- legar og misserislegar sveiflur í innstreymi hlýsævarins norður fyrir land. Þannig náði hlýsærinn í lok ágúst 1947 austur fyrir Langanes, í júlí 1948 voru austurtakmörk hans milli Siglufjarðar og Melrakka- sléttu og í fyrri hluta ágúst sama ár milli Melrakkasléttu og Lahga- ness. Sumarið 1949, sem var óvenjulega kalt sumar, náði hlýsærinn skemmra austur en árin á undan; í júlí voru austurtakmörkin vestan Siglufjarðar, og um 20. ágúst milli Siglufjarðar og Melrakkasléttu. Hvernig hlýsærinn færist smám saman austur á bóginn, þegar líð- ur á sumarið, sést greinilega á 3. mynd, sem sýnir útbreiðslu hlýsæv- arins á þrem tímabilum sumarið 1948, 6,—18. júlí, 26.—30. júlílog 7.—14. ágúst. Athuganirnar á miðtímabilinu voru gerðar af danska hafrannsóknaskipinu „Dana“. Sé miðað við þann tíma, sem athugjin- irnar voru gerðar á austurjaðri salta sjávarins, hefur jaðar hlýsæýar- ins færzt til austurs með 2.4 sjómílna haða á sólarhring að meðaftali milli fyrstu og annarrar athugunar og 2.9 sjómílna hraða miíli ann- arrar og þriðju athugunar. Þessi útreikningur gefur auðvitað óná- kvæmt gildi fyrir hinn raunverulega straumlnaða, bæði af því að stöðvarnar eru ekki nægilega þéttar til þess að austurtakmörk hlý- sævarins séu þekkt nákvæmlega, og auk þess blandast hlýsærinn að einhverju leyti sjóheildunum, sem á leið hans .verða, en við J^að lækkar seltan. Þessum niðurstöðuin ber Jró allvel saman við niður- stöður dönsku haffræðinganna Frede Hermanns og Helge Thomsen

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.