Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1951, Page 30

Náttúrufræðingurinn - 1951, Page 30
76 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN línan niður undir 300 metra, en fyrir utan landgrunnið er hitinn 0° á um það bil 75 metra dýpi. Svo hækkar hitastigið aftur og við Jan Mayen-grunnið nær 0°-jafnhitalínan niður að 300 metra dýpi. Báða mánuðina liggur -4- 0.5°-jafnhitalínan í um það bil 600 metra dýpi. Seltan í halla landgrunnsins út frá Langanesi er tiltölulega lág, nær ekki 34.9%0 fyrr en komið er niður fyrir 200—300 metra, en þá er hitastigið undir 0°. Áhrifa hlýsævarins gætir því ekki. Seltan fer hins vegar smáhækkandi norður á bóginn og við Jan Mayen-giunnið er hún komin upp fyrir 34.95%0 í yfirborðslögunum. Þessi tiltölulega háa selta er væntanlega til orðin sökum blöndunar sjávarins á þessu svæði við hlýsæ komnum austan að frá Atlantshafssjónum við Noreg. 7. mynd sýnir straumhraðann á ýmsu dýpi miðað við 1000 metra í þessu sama sniði. Báða mánuðina er tiltölulega sterkur straumur til suðausturs í kanti íslenzka laiidgrunnsins og virðist Austur-ís- landsstraumurinn verg þar sterkastur. Er það í fullu samræmi við skoðanir Helland-Hansens og Nansens, en þeir gerðu sem kunnugt er ýtarlegar rannsóknir á þessum slóðum í byrjun aldarinnar. Lengra til norðurs er straumurinn veikur og stefnur hans óreglulegar. Á því svæði eru breytingar mjög litlar í meðal eðlisþyngd vatnssúlunnar og verða þá hlutfallslegar skekkjur í straumútreikningunum miklu meiri. Straumstefnunum í báðum sviðunum ber þó svo vel saman í megin atriðum, að varla getur verið um tilviljun að ræða. í nánd við Jan Mayen er talsverður straumur úr austurátt og kemur það vel heim við hina tiltölulega háu seltu í yfirborðslögunum í þeim hluta sniðsins. Síðastliðið sumar (1950) voru litlar rannsóknir gerðar á hafsvæð- inu milli íslands og Jan Mayen af hálfu Fiskideildarinnar. En sam- kvæmt þeim fregnum, sem borizt hafa frá norskum rannsóknaleið- öngrum, hefur sjávarhiti þá einnig verið venju fremur lágur á þessu hafsvæði. Ýmsar tilgátur hafa verið settar fram af fiskifræðingum um sam- band milli göngu síldarinnar á Norðurlandsmiðin og hinna ríkjandi liafstrauma á þeim slóðum. Sú þeirra, sem nú er efst á baugi, gengur í þá átt að skýra síldarleysið við Norðurland síðustu ár með óvenju- legum styrk Austur-íslandsstraumsins, sem hindrað hafi göngur síld- arinnar inn á miðin. Styðst þessi tilgáta við rannsóknir norska fiski- fræðingsins Einns Devold í Noregshafinu s.l. sumar, en frá þeim stórmerku athugunum var nánar skýrt í síðasta hefti Náttúrufræð- ingsins (Hermann Einarsson). Segist Devold svo frá, að síldin hafi

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.