Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1951, Page 32

Náttúrufræðingurinn - 1951, Page 32
8. mynd. — Hita- og seltuútbreiðsla i sniðinu frá Langanesi til Jan Mayen um miðjan júli 1948. virzt forðast liina köldu tungu Austur-íslandsstraumsins. Telur hann því sennilegt, að sé Austur-íslandsstraumurinn mjög sterkur, muni síldin síður sækja á Norðurlandsmiðin, heldur ganga austan við köldu tunguna í áttina til Jan Mayen. Ekki skal hér dæmt um sennileika þessarar tilgátu, enda er mér ókunnugt um nýleg norsk gögn, sem hún kann að vera byggð á. Að- eins skal á það bent, að hún virðist ekki koma vel heim við ástandið á hafsvæði Austur-íslandsstraumsins sumarið 1948, sem var mesta síldarleysissumarið. Frá því ári eru til bæði norsk og dönsk gögn, sem safnað var á þessum slóðum. Á 8. niynd er sýnt snið frá Langa- nesi til Jan Mayen, sem rannsakað var um miðjan júlí 19481 Borið saman við sumarið 1949 er hér bersýnilega um gerólíkt ástand að ræða. Pólsævar gætir aðeins á örlitlu svæði í miðju sniðinu í 75—100 metra dýpi, og 0°-jafnhitalínan liggur í 800—400 metra dýpi í syðri hluta sniðsins, en í 500—600 metra dýpi norður við Jan Mayen grunnið. Árið eftir (1949) var hitastigið hins vegar undir 0° neðan við 75 metra í meginhluta sniðsins. Sumarið 1949 náðu því saman liinn blandaði pólsær og botnsjórinn, en hlýrra millilag vantaði. 1) Þetta snið hef ég teiknað eftir norsknm athugunum, sem dr. Jens Eggvin, forstöðu- maður norsku sjórannsóknanna hefur vinsamlegast sent mér.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.