Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1951, Qupperneq 36

Náttúrufræðingurinn - 1951, Qupperneq 36
82 NÁTT£l RUFRÆÐINGURIN N í kansellíbréfi þessu kemur þá tvennt fram. Annars vegar það, að Dómkirkjan hafi skemmzt í stormi, rétt eins og Arngrímur segir, hins vegar í landskjálfta, og það þá 1584; livorttveggja fyrir nokkru. Nú er ekki óeðlilegt að ætla, að einhverjar jarðhræringar kynnu að hafa getað veikt kirkjuhúsið, enda komið til ára sinna, reist árið 1395, svo að stormur hafi getað valdið töluverðum skemmdum, sem ella hefðu ekki orðið. Að vísu minnir þetta grunsamlega á atvikin, er Péturskirkjan loks lét undan náttúruöflunum hinn 16. nóv. 1624, eins og segir í vitnisburðinum hinn 14. júní 1625 um fall henn- ar: ,,Þá gengu hér, um það bil hún féll, jarðskjálftar miklir og svo þar fyrir, svo að smærri hús öll bifuðust."1 Undir þenna vitnis- burð skrifuðu m. a. Arngrímur lærði offcialis, kirkjupresturinn og ráðsmaðurinn. Erfitt er því að rengja þetta. Hins vegar skal þess get- ið, að í öðrum vitnisburði um sama efni útgefnum daginn áður nefna þessir sömu menn enga landskjálfta heldur aðeins norðanstorminn. Og þegar höfð er hliðsjón af annarri frásögu um þetta atvik, sem virðist runnin frá Oddi biskupi Einarssyni, þar sem segir: „Item hafði þar áður orðið sums staðar vart við jarðskjálfta. En hvort hann mun hafa fylgt þessum stormi, þá kirkjan féll, það vita menn ekki.“2 — Þá gæti mönnum virzt sem svo, að þeim Hólamönnum væri nokk- uð tamt að grípa til landskjálfta til þess að firra sig ábyrgð. Guð- brandur biskup hafi þá skírskotað til frægðar eldfjallalandsins til þess að komast að hagkvæmari viðarkaupum, en þeir Arngrímur lærði til þess að koma sér hjá ábyrgð staðarins. Þetta virðist óneitan- lega vera nokkuð mikil bíræfni. Er hitt líklegra, að einhverjar jarð- hræringar hafi átt sér stað í austanverðum Skagafirðinum utanverð- um 1584 og um eða fyrir 1624. Nú vill svo vel til, að lítið kver hefur varðveitzt úr viðarreikning- um Guðbrands biskups, eða alls 8 bls. Er það allt með hans hendi og nú bundið framan við reiknings- og minnisbók hans, sem varð- veitt er í Þjóðskjalasafninu.3 Taka þessir reikningar yfir árin 1591 og 1592. Kennir þar margra grasa eins og vant er í athugagreinum Guðbrands. Nefnir hann þar Langanessviðu og dönsk borð, sem gætu verið borð frá sendingunni 1588. Þar kemur einnig fyrir orð úr smíðamáli þeirra tíma, sem ég hef ekki fundið annars staðar, t. d. „Stóra tréð: sagað í sundur í parta í Hrútafirði. Eru þeir digrustu óunnir. Þeir fremstu komu í 12 stál, og falla úr hverju stáli 3 fjalir.“ 1) Safn til sögu íslands V. bd. No. 6, bls. 193. 2) sama. bls. 22. 3) Bps.skjal. 31 & 32.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.