Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1951, Side 43

Náttúrufræðingurinn - 1951, Side 43
JAKOB H. LÍNDAL 89 þó allur til, síðari hluta ævinnar að minnsta kosti. Þó náði hann að rita fróðlega grein um myndun Vatnsdalshóla (Hvernig eru Vatns- dalshólar til orðnir?, Náttúruíræðingurinn, 1936, bls. 65—75). Tvær ritgerðir samdi hann um æskuhérað sitt, Skagafjörð, er báðar flytja jarðfræðileg nýmæli. (Mælifellshnjúkur, Náttúrufræðingurinn, 1940, bls. 51—67, og Drangey og hvernig ltún er til orðin, Náttúrufræð- ingurinn, 1941, bls. 41—46) og í afmælishefti dr. Helga Pjeturss, er Hið íslenzka náttúrufræðifélag gaf: út í tilefni sjötugs afmælis ltans (Náttúrufræðingurinn, 2. hefti 1942) reit Jakob veigamikla ritgerð um: Jökulmenjarnar í Fnjóskadals-og Kinnarfjöllumásamtumhverfi þeiiTa. Eins og þeim er vel kunnugt, er kynnt hafa sér jarðfræðirann- sóknir íslands, hafði dr. Helgi lýst jökulurð í svonefndu Skriðugili í framanverðum Fnjóskadalsfjöllum, og raunar víðar í hinni norð- lenzku basaltmyndun. Ýmsir vildu efa, að hér gæti verið um jökul- urðir að ræða. Bent hafði verið á ýms jarðfræðileg atriði, er ekki gátu vel samrýmst því, að jökla hefði gætt áður en lauk upphleðslu basaltmyndunarinnar á þessum slóðum. Jakob Líndal segist sjálfur liafa verið „dálítið tregur til þess að trúa því, að jökulmenjar mundu ná ofan í hina upprunalegu basaltbyggingu Norðurlands“. Þessi efi hans leiddi til þess, að hann fór nokkuð um fjöllin vestan Skjálfanda- fljóts sumarið 1941. Að vísu taldi Jakob sig ekki hafa fundið jökul- urðina í Skriðugili svo að liann gæti fært á það sönnur, en á hinn bóginn heppnaðist honum að finna fornar jökulurðir á þremur stöðum í basaltmyndun þessari, er allar hlutu að hafa sömu afstöðu til basaltupphleðslunnar og urðin í Skriðugili hafði. Hann var því ekki í vafa lengur urn, að spor ísaldanna voru að finna niðri í hinni norðlenzku basaltmyndun, og að þessi verksummerki jöklanna voru eldri en hið stórkostlega jarðlagasig, er skapað hefir Bárðardal að nokkru leyti. Efni greinarinnar skiptir miklu máli fyrir jarðmynd- unarsögu íslands, og svo er það í rauninni með allt, er Jakob reit urn jarðfræði íslands, allt voru það mikilsverð atriði, brennandi mál- efni, er liann fékkst við að leysa og honum auðnaðist sannarlega að bæta við það, sem áður hafði áunnizt. Jakob H. Líndal fæddist 18. maí 1880 á Steiná í Austur-Húna- vatnssýslu. Hann lézt 13. marz 1951 að heimili dóttur sinnar í Reykjavík. Hann var kvæntur Jónínu Sigurðardóttur frá Lækjamóti, er andaðist 19. júlí 1950. Börn þeirra eru: Sigurður Baldur og Mar- grét. Þau hjón eru jarðsett í heimagrafreit að Lækjamóti í Víðidal. Jóhannes Áskelsson.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.