Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1951, Blaðsíða 48

Náttúrufræðingurinn - 1951, Blaðsíða 48
94 NÁTTÚRUFRÆÐIN GURIN N Aldur Piltdownmannsins Fáar frummannaleyfar hafa vakið meira umtal og deilur en leyfar hins s.k. Piltdownmanns, en bein hans fundust á stað, er nefnist Piltdown, í Sussex á árunum 1908—1915. Hét sá Charles Dawson, lögfræðingur að atvinnu, sem fyrstur fann þarna frummannabein og fékk Piltdownmaðurinn eftir honum sitt latneska nafn, Eoan- tliropus Daiusoni (Eoanthropus af gr. eos, morgunroði, og anthrop- ios, maður). En beinin voru fyrst rannsökuð af jarðfræðingi við British Museum, A. S. Woodward. Bein þau, er fundust, voru vinstri helmingur af höfuðskel og brot af hægri helmingi hennar, hægri hluti neðri kjálka með tveimur jöxlum og augntönn úr efri kjálka. Beinin fundust í malarlagi, og þar fannst einnig talsvert af dýrabein- um, m. a. bein úr nashyrningi og fíl þeim, er nefnist Mastódon. Þessi dýrabein eru örugglega frá fyrsta liluta Kvartertímabilsins, og hafa flestir fræðimenn hneigzt að þeirri skoðun, að Piltdownmaður- inn væri frá sama tíma og því a. m. k. 500.000 ára gamall. Hafa sumir jafnvel talið hann eldri en apamanninn frá Java. En aðrir fræði- menn hafa talið hann miklu yngri. Það, sem aðallega hefur valdið skoðanamuninum um aldurinn, er það, að mjög skiptir í tvö liorn um útlit þeirra beina, er fundust. Höfuðskelin líkist mjög höfuðskel nútímamanns, ennið hátt, hnakkinn hvelfdur og lieilabúið næstum eins stórt og meðalheilaliú nútímamanns, eða rúml. 1300 cm3. Aftur á móti er neðri kjálkinn mjög frumstæður, nánast eins og á Oran- gutanapa, og sömu leiðis tennurnar. Því hafa sumir fræðimenn haldið því fram, að höfuðskelin sé ekki af sömu tegund og kjálkinn og tennurnar, heldur miklu yngri, og hafi lent hjá hinum beinun- um af tilviljun. Nú virðist sem verið sé að binda enda á deilurnar um aldur Pilt- downmannsins. í grein í The Illustrated London News, 10. des. 1949, er sagt frá nýjum rannsóknum á beinum Piltdownmannsins með s.k. flúor ákvörðun (fluorine test). Þessi aðferð til aldurákvörð- unar byggist á þeirri staðreynd, að flúormagn beina, sem liggja í jarðvegi, er jarðvatn leikur um, eykst með aldrinum, því flúor, sem ætíð er í vatninu, þótt í smáum stíl sé, binzt kalcíumfosfati bein- anna. Bein, sem hafa varðveitzt jafn lengi við sams konar skilyrði, eiga því að hafa sama flúormagn. Jarðfræðingar við British Museum hafa nú, í samvinnu við færa efnafræðinga, ákveðið með mjög mik- illi nákvæmni l'lúormagn Piltdownbeinanna, bæði manna og dýra,

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.