Náttúrufræðingurinn - 1951, Blaðsíða 49
SMÁGREINAR
95
og birt niðurstöðurnar af þessum rannsóknum. Þær leiða í ljós: í
fyrsta lagi, að höfuðskelin er jafn ung kjálkanum og tönnunum og
því vart að efa, að höfuðbeinin öll séu af sömu tegund. í öðru lagi,
að þessi höfuðbein eru miklu yngri en nashyrnings- og Mastódon-
beinin, sem, eins og áður getur, eru frá því snemma á Kvartertíma-
bilinu. Telja fræðimenn þeir, er rannsakað hafa beinin, að Piltdown-
maðurinn hafi verið uppi í lok síðasta lilýviðrisskeiðs ísaldarinnar,
Jr. e. a. s. fyrir um 120,000 árum og liðið undir lok á síðasta jökul-
skeiði. En ekki hefur, mér vitanlega, verið gefin nein fullnægjandi
skýring á hinu undarlega höfuðlagi Jressarar manntegundar, sem
öðrum manntegundum fremur virðist mega kallast mannskepna.
S. Þ.