Náttúrufræðingurinn - 1956, Síða 14
124
NÁTTÚ RUFRÆÐIN GURINN
um tertíertíma — hefur ísland að öllum líkindum verið tvær eyj-
ar: annars vegar Austurland austan línu h. u. b. milli Ingólfshöfða
og Langaness, hins vegar Vesturland suður fyrir Esju og Norður-
land austur að Bárðardal. Um þessar mundir voru vatnsföll tekin
af grafa sér farvegi þá í blágrýtishásléttuna, er síðar urðu að dölum
og fjörðum í þessum elztu landshlutum.
Sigdalurinn eða sundið milli blágrýtiseyjanna tveggja í austri
og vestri varð ekki til frambúðar. Þar liélt jarðeldurinn áfram upp-
hleðslu sinni, þó að hann væri nú kulnaður að kalla á blágrýtis-
svæðunum. Siglægðin fylltist upp á barma af nýjum gosefnum, svo
að eyjarnar tengdust aftur saman (ef þær hafa þá nokkurn tíma
slitnað alveg sundur; vera má að uppfyllingin hafi alltaf haft við
siginu). En hér hefur síðara kapítulann í sögu berggrunnsins.
MÓBERGSMYNDUNIN.
Allt það efni, sem hrúgaðist upp í sigdældinni köllum við einu
nafni móbergsmyndunina. Takmörk hennar lief ég þegar nefnt í
aðalatriðum, því að hún fyllir bilið milli blágrýtissvæðanna, en auk
þess teljast fremur litlir skikar til þessarar myndunar á utanverðu
Snæfellsnesi og utan til á Skaga milli Skagafjarðar og Húnaflóa. Mó-
bergsmyndunin er að langmestu leyti úr gosbergi (eins og blágrýtis-
myndunin), en gosefnin eru miklu fjölbreyttari í móbergsmyndun-
inni og öll upphleðsla hennar óskipulegri.
Nafnið móberg liafa bæði lærðir menn og leikir notað í ýmsum
misvíðum merkingum. En hér skal það nú aðeins haft í þrengstu
merkingu, þ. e. gosmóberg eða brúngrýti. Þetta berg er að uppruna
ýmiss konar gosmöl (aska, vikur, gjall o. fl.), en er nú harðnað að
steini og víðast brúnt að lit, þó sums staðar svart. Þó að móbergs-
myndunin dragi nafn af þessu bergi, fer því fjarri að hún sé öll af
því gerð. Til dæmis er berggrunnurinn milli Þjórsár og Hvítár í
Árnessýslu á að gizka að hálfu leyti úr hraunlögum. Og þetta eru
mest blágrýtishraun mjög áþekk hraunum blágrýtismyndunarinn-
ar, en þó með miklu minni holufyllingum. En þarna á Árnessýslu
eru mörg hraunlögin nokkuð gráleit, sum lireint grágrýti, önnur
milliafbrigði milli þess og blágrýtis. í millilögum þessara hraun-
laga gætir móbergs ekki heldur mjög mikið. En millilögin eru til-
tölulega þykk og efni þeirra að mjög miklu leyti leirsteinsvöluberg,
sem líkist hörðnuðum jökulruðningi og er eflaust sumt harðnaður