Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1957, Síða 56

Náttúrufræðingurinn - 1957, Síða 56
210 NÁTTÚRU FRÆÐIN GU RIN N unum skipta varppörin tugum eða hundruðum, í miðlungsvörpun- um skipta þau þúsundum, og í stærstu vörpunum geta þau verið tíu þúsund eða þar yfir. Yiirleitt virðist svo sem stærstu kríuvörpin hér séu á annesjum og í úteyjum eða að minnsta kosti fyrir opnu liafi. Yzt á Reykjanesskaganum, milli Reykjaness og Hafna, og yzt á Sn;e- fellsnesi, eru t. d. mjög mikil kríuvörp, og áður hefur verið minnzt á hið mikla kríuvarp í Grímsey (Eyf.). Eigi að síður eru víða allmikil kríuvörp innfjarða og þá lielzt í eyjum eða skerjum. Við ár og vötn upp til Iandsins eru hvergi eins stór kríuvörp og við ströndina. Ein- stætt er kríuvarpið í hólmanum í Reykjavíkurtjörn, en Reykjavík er áreiðanlega eina liöfuðborgin og að öllum líkindum eina borgin i heiminum, sem státað getur af kríuvarpi í miðbænum. Erlendis verpa oft fleiri þernutegundir saman í byggðum. Hér kemur þetta auðvitað ekki til greina, þar sem aðeins ein þernuteg- und, krían, er varpfugl hér á landi. Hins vegar eru allmörg dæmi þess, að hettumáfar hafi tekið að verpa hér í kríubyggðum, eink- um í hólmum og skerjum með ströndum fram eða í vötnum. Getur þetta leitt til nokurra átaka um varplandið, og þar stendur hettu- máfurinn yfirleitt betur að vígi en krían, því að hann verpur mun fyrr. Ekki er mér kunnugt um, að hettumáfurinn hafi samt nokkurs staðar bolað kríunni burtu með öllu. Þá er það og allalgengt, að kríur verpi liér í hólmum og skerjum, þar sem æðarvarp er. Er það yfirleitt talið til bóta, þar sem krían verji varpið fyrir vargi. Flestir munu kannast við það, hve herskáar kríur eru um varptímann, ef óboðnir gestir koma í varplönd þeirra. Gera þær aðsúg að slíkurn friðarspillum, lrvort sem um er að ræða fuglvarg, menn eða skepn- ur, og reyna að hrekja þá úr varpinu. Beita þær óspart hvössu og beittu nefinu í þessu skyni. Enda þótt nrörg kríuvörp hér á landi séu eflaust rnjög gömul, er þó ekki ótítt, að vörp líði undir lok og til nýrra sé stofnað. Orsakir að þessu geta verið hinar margvísleg- ustu, og skal ekki fjölyrt um það hér. Þó má geta þess, að skefjalaus eggjataka mörg ár í röð getur leitt til þess, að krían færi sig um set, yfirgefi gamla varplandið og stofni til nýs varps einhvers staðar í grennd. Ýmsar aðrar orsakir geta og valdið eyðingu varpa, m. a. breytingar á fiskgöngum og átugengd, breytingar á varplandinu sjálfu o. s. frv. Varpkjörlendi kríunnar getur verið ákaliega margbreytilegt, en hún forðast þó jafnan staði, þar sem gróður er mikill. Þetta stafar af

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.