Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 41

Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 41
NÁTTÚRUFRÆÐINGU RI NN 31 Þorvaldur Thoroddsen kannaði Lakagíga og Skaftáreldahraun í efra dagana 3.—10. ágúst 1893. Kom hann fyrstur manna að upp- tökum Skaftár og kannaði einnig fjallið Laka. ítarlegustu lýsingar hans á eldstöðvunum er að finna í Andvara 1894 og Geografisk Tidsskrift sama ár, þriðja bindi Ferðabókar, bls. 155—170 og í Die Geschichte der isldndischen Vulkane. Á lyrsta áratug 20. aldarinnar kánna tveir kunnir þýzkir eldl jalla- fræðingar Lakagíga. Karl Sapper dvaldi þar dagana 10.—12. ágúst 1906 og kannaði einkum sjálfan I.aka og nokkuð af gígaröðinni út frá honum bæði til suðvesturs og norðausturs. Þótt hann væri fremur óheppinn með veður er kort hans í mælikvarðanum 1:12 500 furðu nákvæmt og það bezta, sem enn er til af þessum hluta Laka- gíga, og lýsing hans á þessu svæði er einnig fróðleg, en hún birtist ásamt kortinu í ritgerðinni: tíber einige islandische Vulkanspalten und Vulkanreihen (sjá ritskrá) 1908. Mun minna er að græða á lýsingu þeirri er landi hans, Hans Reck, birti í ritinu Islandische Masseneruptionen 1910 (bls. 60—93), en Reck fór til Lakagíga um miðjan júlí 1908 ásamt Inu von Grumbkow, kærustu von Kne- bels, þess er drukknaði í Oskjuvatni árinu áður. Síðan hefur fátt birzt um Lakagíga utan eldfjallarits Thorodd- sens, er aukið hafi þekkingu okkar á þeim, nema þau kort, sem gef- in hafa verið út: Herforingjaráðskortin í mælikvarðanum 1:50000 af Skaftáreldahraunum í byggð eru frá árinu 1905 og byggð á mæl- ingum frá 1904 og mun Þorv. Thoroddsen að líkindum hafa stuðst við þau, er hann reiknaði út flatarmál hraunanna, sem heita má alveg rétt í eldl jallariti hans. En kcntin af eldstöðvunum og hraun- unum á afrétti í mælikvarða 1:100 000 komu út 1944 og eru byggð á flugmyndum frá 1937 og 1938. Nokkru nákvæmari um hæðar- línur eru amerísku kortin í mælikvarðanum 1:50000, byggð á flug- myndum frá 1945 og 1946. All nákvæmt kort af útbreiðslu Skaftár- eldahraunanna er jarðfræðikort Guðmundar Kjartanssonar í mæli- kvarðanum 1:250 000, en hann hefur bætt um eldri kort með eigin athugunum. M. a. skoðaði hann alla Lakagígaröðina í ágúst 1956. Það kort, sem lrér er birt, er að mestu leyti hið sama og Guðmund- ar, þótt nokkrar leiðréttingar hafi verið gerðar, einkum með hjálp flugmynda, en sjálfur hef ég aðeins dvalizt tvo daga við Lakagíga í byrjun september 1967 og á ég nokkrum vinum úr Jöklarann- sóknafélagi Islands það að þakka, að ég komst í þá ánægjulegu för.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.