Náttúrufræðingurinn - 1968, Qupperneq 58
48
NÁTTÚ RU I RÆÐINGURINN
gjalli. Thoroddsen gekk á þennan gíg 10. ágúst 1893 og segir hann
vera 190 feta háan og örugglega eldri en úr Skaftárelduxn (f894a,
bls. 126). Guðmundur Kjartansson, sem einnig hefur gengið á
þennan gíg, telur einnig líklegt, að hann sé eldri eir Skaftáreldar,
en telur sig þó ekki geta fullyrt það. Af loltmyndum að dæma
virðist mér meiri líkur fyrir því, að hann sé frá 1783, en rétt norðan
við hann byrjar gígaröð (irugglega eldri. Hefur hún mjög svipaða
stefnu og Lakagígar, en liggur örlítið vestar, og hverfur inn undir
jaðarurðir Skaftárjökuls, en ekki verður sagt um það, hvort hún
gengur inn undir sjálfan jökulinn.
Þorvaldur Thoroddsen getur þess til (1894 a, 1894 b, 1925), að
þarna hafi gosið á fyrstu öldum íslandsbyggðar og hafi það gos
skipt vötnum frá jöklinum þannig, að mikið af því vatni, sem
áður féll til Skaftár, liafi nú tekið að falla til þeirrar ár, sem nú
nefnist Hverfisfljót. Byggir hann Jxetta á Landnámabók, en þar
segir: „aðr Almanna fliot leypi var þat kallat Raftalækr“ (Land-
námabók 1900, bls. 99). Almannafljót er sama og Hverfisfljót og
gamla nafnið Raftalækur bendir óneitanlega til þess, að áin hafi
Textar viff myndasíður II—V. — Text to plates II—V.
Mynd II. Nokkuff af gígaröðinni noröaustan Laka, sem sést í bakgrunni. — Aer-
ial view of Lakagigar from NE towards Laki. — Ljósm. S. Þórarinss. 6. VIII. ’62.
Mynd III a. Norðaustursprunga Lakagíga endar í rnjórri rás norðaustan í Laka.
— The Lakagigar fissure cuts into tlie NE slope of Laki.
Ljósm. S. Þórarinsson, 2. IX. 1967.
Myncl III b. Suðvestursprunga Lakagíga endar sem oddmjó skora í suðvesturhlíð
Laka. í hlíðinni sjást sigstallar. — The Lakagigar fissure cutting into the SII'
slope of Laki. Faults scarps are visible on the slope.
Ljósm. S. Þórarinsson, 3. IX. 1967.
Mynd IV a. Klepragígur (A á 5. mynd) meff tjörn á botni, í gígaröðinni suðvest-
ur af Laka. — The inside of a Schweisschlachen crater (A on fig. 5) in the crater
row SW of Laki. — Ljósm. S. Þórarinsson, 2. IX. 1967.
Mynd IV h. Hrauntraðir suðaustur af tjarnargígnum. — Lava channel southeast
of crater A. — Ljósm. S. Þórarinsson, 2. IX. 1967.
Mynd V a. Sprengigígur (C á 5. mynd), 2 km suðvestur af Laka. — Explosion
crater (C on fig. 5) 2 km S1V of Laki. — Ljósm. S. Þórarinsson, 2. IX. 1967.
Myncl V b. Gígur C að innan. Lagskipting gosmalarinnar er greinileg. — The in-
side of crater C showing the stratification of the tephra.
Ljósm. S. Þórarinsson, 2. IX. 1967.