Náttúrufræðingurinn - 1968, Blaðsíða 86
72
NÁTT Ú RU FRÆÐINGURINN
ísland (6). Vegna ferils þess, sem fallstraumurinn í Kambsleiru
myndar, má ætla, að um sé að ræða fyrirbrigði, þar sem bæði langs-
og þversveiflur eiga sér stað í sjónum, eins og gerist i stórum flóum
eða innhöfum. Samkvæmt reikniaðferðum, sem ekki verða raktar hér,
er tímamunur sveiflnanna 3 stundir, og tímamunur flóðs (eða fjöru)
sitt hvoru megin flóans 6 stundir. í Faxaflóa öltum er flóð á nær
sama tíma, svo að þetta sveiflufyrirbrigði getur ekki verið bundið
við Faxaflóa einan, heldur er hann hluti miklu stærra haf-
svæðis, sem hefur sveifluhniit sinn suður í hafi. Hinn eiginlegi
flói er allt norðanvert Atlantshaf. Þannig verða sjávarfallabylgjur
Faxaflóa svokallaðar „þvingaðar bylgjur". Sé gerð sérstök athugun á
þeim kemur aftur í Ijós, að sveiflupunkturinn liggur langt utan við
mynni Faxaflóa.
Nú verður rætt um hinn stöðuga hafstraum. Straumhraðinn í 20
metra dýpi reyndist vera um 9 cm/sek, en í 50 metra clýpi var hann
um 6 cm/sek. Ætla má, að straumhraði í yíirborði hafi verið meiri,
og a. m. k. um 10 cm/sek. Niðurstöður þessara straummælinga
sýna, að straumurinn leitar til norðvesturs á þessum stað í
Kambsleiru. Meginstefna álsins er um 300°, en stefna strand-
lengjunnar er um 330°. Hinn stöðugi hafstraumur virðist því
leita heldur á landið á þessum stað (sjá töflu), og það meir í 20 metra
dýpi en í 50 metra dýpi, enda er það í samræmi við stefnu áls og
strandlengju. Suðausturstraumur væri fullt eins líklegur á þessum
stað, einkum vegna botndýpis, en sem fyrr segir gengur állinn inn
úr djúpi Faxaflóa til suðausturs. En hvaðan kemur sjórinn, sem
streymir um staðinn úr suðaustri? Þessu til atliugunar var reiknuð
rit meðaleðlisþyngd sjávar í efstu 30 metrunum fyrir allan Faxa-
flóa og djúpt út af honum. Til þessara reikninga þarf hitastig og
seltu sjávarins, en athuganir á þeirn voru gerðar á öllu þessu svæði
frá yfirborði til botns dagana 9.—11. ágúst (5. mynd). Það er almenn
regla, að streymi sjávar er þannig háttað, að sjór er eðlisléttari á
hægri hönd straumstefnunnar en á vinstri hönd hennar. Þetta atriði
er þó háð ýmsum forsendum, sem fyrr segir. Á 5. mynd eru sýndar
niðurstöður útreikninganna og jafneðlisþyngdarlínur dregnar.
Myndinni til skýringar skal taka fram, að aðeins aukastafir fyrir
aftan kommu eru tilgreindir, þannig að t. d. stærðin 27.00 merkir
eðlisjryngdina 1.02700. Myndin virðist styðja niðurstöður beinu
straummælinganna í Kambsleiru, og jafnframt gefur hún hugmynd