Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 99
NÁTTÚRU FRÆÐINGU R1 NN
85
þess, að mér er ókunnugt um að húsönd hafi nokkurn tíma sézt á
þessurn stað.
Sogið, 13. janúar 1963. Þennan dag var logn, skýjað og frost. Öll
vötn voru lögð, en vakir þó hér og þar. Ók með þeim læknunum
Birni Guðbrandssyni og Ulfari Þórðarsyni að Laugarvatni og með-
fram Sogi. — Um kl. 10.00 sáum við hvinandarstegg ásamt kven-
fugli á Sogi við brúna hjá Alviðru. Þetta par bar hratt niður ána,
en ekki sáum við aðrar endur á þessum stað. — Um kl. 13.00 sarna
dag sáum við hvinandarstegg með kvenfugli á uppistöðulóninu við
Ljósafoss. Þessir fuglar virtust vera paraðir og héldu sig sér, en tæp-
lega 20 húsendur voru á lóninu allt í kring. Fékkst því góður sam-
anburður á blikunum, en kvenfuglinn varð ekki ákvarðaður með
vissu.
Bakkatjörn, Seltjarnarnesi, Kjós., 1.—3. mai 1963 (eintak i Nátt-
úrufrceðistofnun íslands). Hinn 1. maí 1963, um kl. 06.15—06.30
skoðaði ég hvinandarblika á Bakkatjörn á Seltjarnarnesi. Tjörnin
er mjög grunn og mikið til ferskt vatn í henni á síðustu árum.
Hvinönd þessi hélt sig aðallega innan um æðarfugia eða í nánd
við þá, kafaði nokkrum sinnuin eftir æti og sat róleg á vatninu eða
svaf þess á milli. Næsta dag (2. maí) fór ég tvisvar að Bakkatjörn
að athuga hvinandarblikann. Sást hann þá bæði á sjónum úti af
Bakkagranda og á tjörninni. Hinn 3. ntaí fór ég með Jóni B. Sig-
urðssyni kennara að Bakkatjörn um kl. 05.00 og tókst að skjóta
hvinöndina, sem hafði verið í ætisleit ásamt hóp æðarfugla á tjörn-
inni. Fuglinn er nú varðveittur uppsettur í Náttúrufræðistofnun-
inni. Þyngd fuglsins var 1063 g (mjög feitur), eistun ljós og þrosk-
uð (vinstra eista um 17x10 mm). I kirtlamaga fann ég um 20 ryk-
mýslirfur og púpur (Chironomidae) auk 5 smásteina. í fóarni var
mikið af lirfum og púpum rykmýs og nokkrar óákvarðanlegar jurta-
leifar. Um þriðjungur af innihaldi fóarnsins var grófur sandur (með-
alþvermál um 2 mm) auk nokkurra máðra kræklingabrota og ann-
arra skeldýrabrota.
Mývatn, 18.—19. júni 1963. Að morgni hins 18. iúní 1963 sá ég,
ásamt hóp erlendra náttúruskoðara, einn hvinandarblika með um
50 húsöndum (mest blikum) í hóp alllangt úti á Mývatni, skammt