Náttúrufræðingurinn - 1968, Side 102
88
NÁTTÚRU FRÆÐINGURINN
Hinn 26. desember 1965 sá ég þrjá hvinandarblika á dreif efst á
Ulfljótsvatni, voru tveir með kvenfuglum en sá þriðji sennilega án
maka. — Hinn 9. janúar 1966 sá Agnar Ingólfsson dýrafræðingur
hvinendur (alls 9 blika og sennilega 6 kollur) á þessum slóðum, sem
liér segir: Efst á Úlfljótsvatni tvo hvinandarblika, var annar þeirra
stakur en hinn í hóp með þremur kvenfuglum (Bucephala sp.) og
einum húsandarblika. Sama dag sá Agnar 7 hvinandarblika ásamt
5 kvenfuglum á Sogi nálægt Alviðru. Voru þær í tveimur smáhóp-
um — 2 blikar með þremur kollum og a. m. k. 5 blikar með tveim-
ur kollum — en erfitt var að telja endurnar í síðarnefnda hópnum,
þar sem þær voru síkafandi. Við Alviðru sáust engar húsendur með
vissu. — Hinn 10. janúar 1966 fór ég ásamt þeirn Agnari, Jóni B.
Sigurðssyni og Sigurði Samúelssyni að Sogi, og gátum við fylgzt
nokkuð með hvinöndunum við Alviðru frá kl. 10.30 til 14.00. Alls
töldum við 10 fullorðna hvinandarblika og fjóra kvenfugla við Al-
vdðru. Mestallan daginn voru endurnar í ætisleit, venjulega all-
langt úti á ánni í dreifðum hóp. Þær voru afar styggar og héldu
sig aðskildar frá húsöndum, sem voru á dreif ofar á ánni og voru
miklu spakari. Fálki kom einu sinni yfir ána úr vestri og steypti
sér niður að hópnum. Köfuðu þá þrjár hvinendur, en 11 flugu
upp en lentu lljótt aftur og köfuðu þegar í stað. Fálkinn hélt þá
á brott. Um kl. 13.00 urðu endurnar aftur fyrir styggð, og flugu
þær þá niður fyrir ármót og lentu langt úti á Ölfusá á móts við
Laugarbakka. Um kl. 14.00 sátu þær enn á sama stað í þéttum hnapp
og án þess að éta. Hafa þær sennilega náttað sig þarna úti á breið-
unni. — Hinn 6. febrúar 1966 sá ég alls 5 hvinandarblika og a. m. k.
12 kvenfugla á Úlfljótsvatni. Voru endur þessar flestar í tveimur
hópum — 2 blikar með 8 kvenfuglum og 2 blikar með fjórum koll-
um, einn hvinandarbliki var auk þess með húsandarblika og tveim-
ur eða þremur kvenfuglum. Sama dag sá ég þrjá hvinandarblika
á Sogi nálægt Alviðru. Voru þeir allir paraðir, og voru þessi pör
dreifð á ánni. — Hinn 9. apríl 1966 leit ég eftir hvinöndum með-
fram Soginu, en gat ekki fundið neina.
Mývatn, 24. maí 1966 (hamur í Náltúrufrceðistofnun íslands). Um
hádegi 24. maí 1966 sá ég hvinandarblika með húsandarpari við
Álftagerði í Mývatnssveit. Sátu þessar endur og sváfu á ísskör nærri
landi. Ég náði hvinandarblikanum. Reyndist hann vera fremur