Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 103

Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 103
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 89 magur og vó 861 g, kynfæri voru þroskuð (vinstra eista 21x4 mm). í kirtlamaga var mikið a£ rykmýslirfum mjög' meltum, og auk þess um 20 nykrusprotar (Potamogeton sp.). í fóarni var aðeins svolítill sandur og óákvarðanlegar fæðuleifar. Ósar, Gull., 26. desember 1966. Þennan dag sá Jón B. Sigurðsson stakan hvinandarblika utarlega á Ósum. í birtingu sama dag sá hann andarpar (Bucephala sp.), sem annaðhvort voru hvinendur eða hús- endur. Einnig sá Jón stakan kvenfugl (Bucephala sp.) inni á Ósa- botnum þennan dag. Sogið, 4. janúar 1967. Þennan dag sá ég tvo staka hvinandarblika á Sogi rétt neðan við Tannastaði, og skammt fyrir neðan Efrafall var þriðji blikinn. Engir kvenfuglar sáust með þessum hvinandar- blikum. Niðurlag Að lokum vil ég fara nokkrum orðum um uppruna þeirra hvin- anda, sem hér hafa náðst. Tegundinni hefur verið skipt í tvær deili- tegundir: Bucephala clangula clangula (L.) í Evrasíu, og Bucephala clangula americana (Bonaparte) í Norðurameríku. Amerísku fugl- arnir eru að meðaltali nokkru stærri en þeir evrasísku, en nokkur vafi leikur þó á, hvort þessar deilitegundir eiga rétt á sér. Schiöler (1926) telur eina íslenzka haminn, sem hann hafði undir höndum (frá Mývatni 1910), vera B. c. clangula. Mál íslenzku hvinandarblik- anna benda til að þeir séu af evrópskum uppruna, en ekki er þó hægt að slá því föstu fyrr en hliðstæðar mælingar hafa verið fram- kvæmdar á hvinöndum frá austurhluta Norðurameríku. Ég hef hér að framan reynt að draga saman á einn stað allt það, sem nú er vitað um hvinendur hér á landi. Rétt er að taka það fram, að tilgátur í ýmsum handbókum um að þessi tegund sé varp- fugl á íslandi, hafa ekki hlotið staðfestingu. Virðast Millais, og lík- lega Nielsen faktor á Eyrarbakka, vera upphafsmenn þessa orðróms. Athuganir á síðustu árum sýna að hvinöndin er árviss vetrar- gestur á Soginu og e. t. v. víðar á Suðvesturlandi. Hún má einnig heita árviss á Mývatni, en annars er mjiig á huldu um sumardvöl hennar hérlendis. Ennþá verður ekkert um það sagt, hvort fjöldi þeirra hvinanda, sem hér hefur orðið vart síðan 1960, bendir til raunverulegrar fjölgunar eða stafar aðeins af auknum athugunum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.