Náttúrufræðingurinn - 1968, Blaðsíða 119
NÁTT Ú RU FRÆÐINGURINN
105
Eyþór Einarsson:
Nýjar plöntutegundir nema land í Surtsey.
Eins og' kunnugt er skutu fyrstu blómplönturnar rótum í Surts-
ey í júní 1965 (Friðriksson 1965) og var það Cakile edentula (Bigel.)
Hook, fjörukál, sem þar varð fyrst til. Kemur það vel heim við
niðurstöður tilrauna, sem gerðar voru til að fá fræ af fjörukáli,
sem safnað var á norðausturströnd Surtseyjar vorið áður, til að spíra.
Af 24 fræjum, sem reynd voru, spíruðu 15 eða um tveir þriðju
hlutar (Einarsson 1966). Samtímis var reynt að fá 4 fræ af Angelica
archangelica L., ætihvönn, sem safnað var á sama stað, til að spíra,
en Jrað tókst ekki. Aska úr Syrtliiigi drap allar fjörukálsplönturnar
í Surtsey, án Jies að þær næðu að blómgast, um það bil tveimur
vikum eftir að þær fundust fyrst.
í júlíbyrjun 1966 fór Cakile edentula (Bigel.) Hook, fjörukál,
aftur að vaxa í fjörunni á norðurströnd Surteyjar og nú fannst Jrar
einnig Elymus arenarius L., melgras, (Friðriksson 1967). Fræ af
melgrasi höfðu áður fundizt rekin í Surtsey (Einarsson 1965, Frið-
riksson 1964 og 1966). Þessar plöntur áttu þó ekki langa ævi fyrir
höndum í Surtsey, ]>ví brimið, sem oft er aðgangshart, skolaði þeim
burt áður en þær næðu að blómgast.
Upp tir miðjum maí 1967 voru nokkrar smáplöntur af Cakile
edentula (Bigel.) Hook, fjörukáli, enn farnar að vaxa á norður-
strönd Surtseyjar, ásamt einni plöntu af Elymus arenarius L., mel-
grasi, samkvæmt upplýsingum frá Sigurði Þórarinssyni. Þegar ég
var á ferð í Surtsey ásamt Sigurði mánuði seinna voru allar Jtessar
plöntur horfnar og hafði Jsá annaðhvort brimið tekið Jtær, eða
sandurinn kaffært þær. Aftur á rnóti fundust nú fjörukálsplöntur
á nýjum stað, eða 5 plöntur á norðausturströndinni beint austur af
syðra vatninu á Surtsey (sjá kort) og 1 rétt við norðvesturhorn
vatnsins, Jrar sem ekki höfðu fundizt plöntur áður. Sú fjörukáls-
planta, sem fyrst fannst blómstrandi allra plantna í Surtsey 26.
júní s. 1. hefur vafalaust verið ein Jressara. Síðar á sumrinu fór fjöru-
kálið aftur að vaxa kringum nyrðra vatnið á Surtsey og einnig milli