Náttúrufræðingurinn - 1968, Qupperneq 123
NÁTT Ú RUFRÆÐIN G U RIN N
109
10 km fjarlægð frá Surtsey. Þótt túnvingullinn sé ekki strandplanta
og ekki sé vitað til, að hann dreifist með sjó, gæti hann samt hafa
borizt þá leiðina til Surtseyjar frá næstu eyjum. Vegalengdin er
það stutt að í norðaustanátt, sem oft er á þessum slóðum, er senni-
legt að slíkur flutningur taki það skamman tíma, að fræin nái að
berast spírunarhæf til Surtseyjarstranda. Þó er það mögulegt, og ef
til vill sennilegra, að túnvingullinn hafi borizt þessa stuttu vega-
lengd til Surtseyjar frá næstu eyjum með fuglum, Jtví allmargt
fugla hefur sézt í Surtsey. (Guðmundsson 1966 og 1967). Túnving-
ullinn vex að vísu á sömu slóðum og aðrar plöntur þarna, J). e. við
efstu sjávarmörk, en einmitt Jrar eru fuglar oft að vappa innan um
þangleifar og annað, sem þar hefur rekið á land.
Alls uxu fimm tegundir blómplantna í Surtsey þessa daga:
Honkenya peploides (1.) Ehrh., fjöruarfi. Af honum uxu
flest eintök, eða 26 alls, og langflest á norðausturströndinni.
Hið minnsta var nýfundna plantan á suðausturströndinni. Þó
mörg fjöruarfaeintökin væru allstór og þroskaleg hafði ekkert
þeirra blómgast og engir blómknappar voru sýnilegir á neinu
Jreirra.
Cakile edentula (Bigel.) Hook., fjörukál. Af J>ví fann ég
14 eintök og voru flest þeirra gróskideg og falleg, en sum voru
farin að falla. Langstærsta eintakið óx á vesturbakka syðra
vatnsins og myndaði Jrar breiðu, sem var 70 crn löng og 40
cm breið. Þetta eintak var allt þakið blómum og aldinum og
öll hin 13 eintökin höfðu einnig blómgast og báru þroskuð
aldin, 5 voru enn í blóma.
Elymus arenarius L., melgras. F.g fann fjögur eintök og
voru tvö þeirra allstór, en ekkert hafði blómgast.
Mertensia maritima (L) S. F. Gray, blálilja. Af henni fannst
aðeins eitt lítið eintak með einu einasta blaði, en Jretta blað
var þó af meðalstærð. Engir knappar voru sjáanlegir.
Festuca rubra L., túnvingull. Eitt lítið og lieldur vesælt
eintak fannst og voru engin merki um knappa eða blómgun
sjáanleg.
Flestar Jiessar plöntur uxu, eins og áður er getið, í lausum sandi
við efstu flóðmörk á hinni flötu strönd og eru Jwí líkur til að sjór