Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1970, Page 16

Náttúrufræðingurinn - 1970, Page 16
158 NATTURUFRÆÐINGURINN 2. mynd. — Fig. 2. Um 21% al stofninum fyrri hluta sumars á tímabilinu 1965 t il 1968 voru kálí'ar, en rúmlega 23% sumarið 1969. Árleg dánartala á þessu tímabili var yiirleitt um 12—17% af heildarfjölda. Þar sem ekki er gerður greinarmunar á ársgömlum dýrum og eldri, er ekki hægt að áætla dánartölu ungviðis og fullorðinna dýra sér, en með hliðsjón af rannsókn Bergeruds (1967) má ætla, að vanhöld séu nrikil á kálf- um á fyrsta ári miðað við fullorðin dýr. Ef gizkað er á um 5% árlega dánartölu fullorðinna dýra á þessu fjölgunartímabili, sem virðist ekki mjög fjarri lagi nriðað við erlendar rannsóknir, má ætla, að unr 40—60% kálfa á fyrsta ári hafi drepizt að jafnaði ár hvert á tímabilinu 1965 til 1968. Veiðar fóru fram árin 1968 og 1969, og lrafa þær eflaust aukið mjög dánartölu fullorðinna dýra. Þó gæti lrin mikla aukning stofnsins frá 1968 til 1969 bent til þess, að á jressu tímabili hafa veiðarnar dregið að einlrverju leyti úr eðlilegunr dauðsföllum kálfanna. Það er eítirtektarvert, að veiðarnar árið 1968 urðu ekki til þess að auka árleg vanhöld stofnsins. Mikil fækkun, um 35%, átti sér stað 1969 til 1970. Með sanr- anburði við sjáanleg áhrif veiðanna 1968 virðist ósennilegt, að þessi fækkun stafi eingöngu af ofveiði. Að vísu er ekki vitað, lrversu nrörg dýr féllu fyrir skotunr veiðinranna þessi ár, og nrá vel vera, að þau hafi verið nriklu fleiri haustið 1969 en árið áður.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.