Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1970, Side 24

Náttúrufræðingurinn - 1970, Side 24
166 NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN Er oft ekki hægt að sjá á gróðurlendum, þótt hreindýrahópur liafi fyrir skömmu hitið þau. Við hreindýrabeit er af þessum sökum minni hætta á staðbundinni ofbeit, sem oft á sér stað við fjárbeit, enda þótt nægir hagar séu fyrir hendi. A plöntuvali hreindýra og sauðfjár er einnig verulegur munur, eins og sýnt er í töflu 5 (I. Þorsteinsson, G. Ólafsson, 1965 og 1967). Féð velur helzt grös og hálfgrös á sumarbeit, en þegar líður á haustið, eykst hlutfallslegt rnagn kvistgróðurs í fóðri þeirra og er að jafnaði 70—80% á vetrarbeit. Þetta hefur í för með sér, að milli sauðfjár og hreindýra er frekar takmörkuð samkeppni um plöntur í sumarhögum, og er það í samræmi við erlendar niðurstöður. Af þessu leiðir einnig, að gróðurlendin hafa ekki sama gildi sem sumarhagar fyrir hreindýr og sauðfé. Kjörgróðurlendi hreindýra eru grasvíðisnjódæld, hálfgrasa- og sefmóar og lyngmóar, en sauð- fjár valllendi og hálfgrasa- og sefmóar. V. ÚRDRÁTTUR OG ÁLYKTANIR I ritgerð þessari er í stuttu máli rakin saga hreindýraniia á ís- landi og birtar niðurstöður rannsókna á fjölda þeirra, þyngd, dreifingu, fæðuöflun og á gróðri hreindýrasvæðanna á hálendi Austurlands. Talið er líklegt, að hreindýrafjöldinn hafi náð hámarki um miðja 19. öld, en síðan hafi hann farið lækkandi og náð lágmarki um 1940. Sú ályktun er dregin, að þessi fækkun hafi öðru fremur orsakazt af versnandi vetrarbeit vegna snjóalaga og rýrnandi gróðurs. Veiðar á þessu tímabili hafi haft lítil áhrif á fjölda dýr- anna, enda fækkaði þeim, þrátt fyrir langa algera friðun. Hreindýratalning, sem hófst 1965, leiddi í ljós, að dýrunum fjölgaði jafnt og þétt fram til 1969, en hafði fækkað mikið við talningu 1970. Veiðar voru leyfðar 1968 og 1969. Rannsóknir leiddu í ljós, að á þeim hluta Austurlandshálendis- ins, sem hreindýrin halda sig einkum á, eru víðáttumikil gróður- lendi, sem eru nýtt mun minna en nemur beitarþoli þeirra. Þessi gróðurlendi eru meðal hinna beztu á hálendi landsins, og á hófleg

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.