Náttúrufræðingurinn - 1970, Side 26
1G8
NÁTTÚRUFRÆÐlNGURINN
vegar getur sauðfé nýtt nokkuð af sama beitilandi vegna þess,
hve ólíkt plöntuval þess og hreindýra er, og kjörgróðurlendin eru
ekki hin sömu.
Miðað við hreindýrafjöldann 1969 mætti auka fjárbeit á hrein-
dýraslóðum án hættu á rýrnandi gróðri og afurðum búfjárins. Hins
vegar virðist ekki ástæða til að fjölga hreindýrunum uml'ram 2500
dýr, nema í þeim tilgangi að hafa af þeim meiri not en verið hefur
hingað til. í þeim efnum má margt læra af reynslu annarra þjóða.
Fáar dýrategundir eru jafn vel til þess fallnar að nýta hálendis-
gróður og hreindýr. Rannsóknir hafa hins vegar leitt í Ijós, að
nær helmingur af beitilöndum landsins eru ofbeitt, en önnur eru
fullnýtt og þola ekki meiri beit. Aðeins á hálendi Austurlands og í
þeim héruðum Vestfjarða, sem lagzt hafa í eyði, er gróður aflögu
umfram það, sem núverandi bústofn þarfnast (I. Þorsteinsson, G.
Ólafsson, G. M. Van Dyne, 1970). Hins vegar er að líkindum of
snjóþungt á Vestljörðum fyrir hreindýrin, og eiga ]tau ]>ví ekki
margra kost völ um beitilönd utan Austurlands.
Á það skal að lokum lögð áherzla, að æskilegt væri, að rannsak-
aðir yrðu betur ýmsir þeir þættir varðandi hreindýrin, sem hér
hafa verið gerðir að umtalsefni.
HEIMILDARIT
Bergerud, A. T., 1967: Management of Labrador caribou. J. Wildl. Mgmt. 31:
621-642.
Friðriksson, S., 1960: íslenzku breindýrin. Ná11úrufræðirigurinn, 30. 1:1—7.
Gultsjak, F. J., 1954: Reindrift i de nordlige strök. Moskva. Tekið úr Skjenne-
berg og Slagsvold, 1968. Bls. 95.
Klein, D. R.. 1968: The introduction, increase, and crash of reindeer on St.
Matthew Island. J. Wildl. Mgmt. 32:350—367.
Leoþold, A. S. ér F. Fraser Darling, 1953: Wildlife in Alaska. New York.
Persson, S., 1962 a: Forsökutfordring av renhjorden inom Stákke skogslappby
vinteren och váren 1962. Samefolket 11—1.163—169.
Skjenneberg, S. og L. Slagsvold, 1968: Reindriften og dens naturgrunnlag.
Universitetsforlaget. Bls. 89—95.
Valtýsson, Helgi, 1945: Á hreindýraslóðum. Akureyri.
Vibe, Christian, 1967: Arctic animals in relation to climatic fluctuations, Medd.
Grjánlantl 170:1-227.
Þorsteinsson, I. og G. Ólafsson, 1965: Plöntuval sauðfjár og meltanleiki beitar-
plantna. Freyr 10—11: 157—163.