Náttúrufræðingurinn - 1970, Side 32
174
NÁTTÚRU FRÆÐINGURINN
M er hún lofttæmd og hellt í bakka (1. mynd). Hlaupið er nú
látið kólna og er tilbúið til notkunar eftir 3 klst. Nú höfum við
efni, sjálft hlaupið, sem ákveður hleðslu eggjahvítu-sameindanna
(það er hlutverk hlaupdúans) og síar þær eftir stærð (það gerir
sterkju-hlaupið með bilinu milli sterkju-sameindanna). Næsta skref
er að koma sýnum fyrir í plötunni og leiða veikan rafstraum, senr
ekki eyðileggur eggjahvítu-sameindirnar, í gegnum hlaupið, en með
því er mismunandi sameindum dreift með hjálp rafstraumsins (—
hlaðnar sameindir leita að -þskauti og -j-lilaðnar að —skauti). Hátt
hlaðnar og litlar eggjahvítu-sameindir berast hraðast, en stórar og/
eða lítið hlaðnar sameindir hægast. Þegar hæfileg dreifing hefur
fengizt, þá er straumurinn rofinn, sterkjuhlaupsplatan sneidd í
þynnur og lituð með tilliti til þeirra prótína (eggjahvítu), sem
áhugi er á hverju sinni. Prótínin koma þá fram sem strik, þar
sem þau eru stödd, jiegar straumur var rofinn (sbr. 2.-6. mynd).
Erfðafræðilega og þróunarfræðilega séð segja þessi prótín oft mikla
sögu, því að þau eru beinir afkomendur erfðasameindarinnar DNA
(litninganna) í annan lið. Því almennt er viðurkennt nú sem góð
kenning, að DNA framleiði RNA og RNA íramleiði aftur prótín
(eggjahvítu). Þannig fáum við fram einstaklingsmynd með nýju
útliti. Hún er samsett af mismunandi strikum í stað þeirra útlits-
einkenna, sem við eigum að venjast, svo sem lögun, háralit o. s. frv.
Með því að lita margar mismunandi gerðir prótína, kljúfum við
raunverulega einkenni hvers einstaklings í marga þætti. Síðan
skoðum við j)á hvern fyrir sig, setjum þá síðan saman aftur, en
reynum að sjá áður, hvaðan hver er kominn með Jrví að bera
saman prótín-mynd þeirra. Þessari tækni óx ekki verulegur fiskur
um hrygg fyrr en O. Smithies (1955) Jrróaði jressa aðferð, því að
með þeinr efnum, sem áður voru notuð, svo sem pappír, sellulósa-
asetati og agar-hlaupi, náðist ekki eins góð dreifing.
Efni og aðferðir
Sterkju-hlaups clúar.
I. Tris-sítrat-bórat pH 8,fi
Tris (hydroxymethyl) aminomethane . . 8,0 g
Sítrónsýra.............................. 1,6 g
Bórat kerdúi ........................... 100 ml