Náttúrufræðingurinn - 1970, Side 33
NÁTTÚ RUFRÆÐI N GU RI N N
175
Ofangreind efni ern sett í eimað vatn, þar til magnið madist
1000 ml. Síðan er pH-gráðan mæld og stillt.
2. Ti'is-sítrat pH 7,6
812.5 ml af 0.05 M sítrónsýru
187.5 ml af 0.76 M Tris
Þessu er blandað saman og pH-gráða stillt á 7,6. Fyrir notkun
er dúinn þynntur 1 : 10 með eimuðu vatni.
Kerdúi.
Bórsýra.................................. 18,6 g
Natrín-hydroxíð ......................... 2,0 g
Þessi efni eru leyst upp, þar til magnið er 1000 ml, þá er stillt
á pH 8,65 með því að bæta við NaOH. ,,Connaught“ sterkja var
notuð í sterkjuhlaupið. (Ferguson og Wallaee 1961, Poulik 1957,
Árnason og Pantelouris 1966).
Litun.
Fyrir eggjahvítu almennt var notuð blanda af nígrósíni og amido-
black í vatnsupplausn með metanóli og ediksýru. Þegar um yfir-
litun er að ræða, er fyrst þvegið með 2% ediksýruupplausn, en
síðan í áðurgreindri vatnsupplausn með metanóli og ediksýru.
Fyrir esterasa var notuð sú aðferð, að láta esterasana brjóta niður
naftyl-sambönd og binda síðan naftolið, sem myndast við azo-lit
(Fast Garnet).
Esterasi
T. d. 1-naftyl-asetat -----—> naftol -þ ediksýra
Fast Garnet
1
Naftol-Fast Garnet
(Fjólublátt samband)
Flestir esterasar, sem reyndir voru, svöruðu bezt í kringum pH
6,0.