Náttúrufræðingurinn - 1970, Page 50
192
NÁTTÚ RUFRÆÐINGURIN N
upplausnartöflu Carpenters (1966) og leiðrétt fyrir hæð frá sjávar-
máli samkvæmt formúlu Juday and Birge (Hutchinson 1957).
Sýrustig (pH) var mælt með Beckman pH-mæli. Til stöðlunar
voru notaðar þrjár mismunandi stuðpúða-lausnir. Næmni tækisins
er ±0.02—0.03 pH-einingar, en nákvæmni vart meiri en ±0.05 pH-
einingar.
Alkaninitet var mælt með því að títrera 50 ml sýni með 0.02
N brennisteinssýru. Phenolphthalein-alkalinitet var fundið með
pltenolplithalein indikator, heildar-alkalinitet nteð blönduðum
indikator (bróm-kresól grænt-methyl rautt). Mælinákvæmni má
ætla, að hafi verið innan við ±3 mg/L.
Hitastig var mælt með nákvæmum yfirborðshitamæli (±0.02°C)
og vendimæli í dýptum undir yfirborði.
Næringarsölt voru mæld með litrófsmæli (Unicam SP 500
Spectrophotometer). Ólífrænt fosfat eftir aðferð Murphy og Riley
(1962), nítrat og sílikat eftir aðferðum Mullin og Riley (1955,
1955a), nítrít eftir leiðarvísi Stricklands og Parsons (1968), sem
byggður er á hinni upprunalegu aðferð Barnes og Folkard (1951),
og ammoníak samkvæmt aðferð Richards og Kletch (1964).
Mælinákvæmni er áætluð sem hér segir: Fosfat ±3%, nítrat
±5%, sílikat ±3% og nítrít ±3%. Talið er, að ammoníakaðferð
sú, sem hér var notuð, mæli einnig óstöðug amino-sambönd í vatn-
inu. Ógerningur er að meta nákvæmni hennar, en hún er vart
meiri en ±10%. Nokkur ammoníakgildanna tel ég mjög vafasöm.
Eru þau sett í sviga í töflu 1.
Niðurstöður og ályktanir.
Niðurstöður efnagreininganna eru sýndar í töflu 1. Nokkur at-
hyglisverð atriði koma fram eins og nú skal greina.
1. Stórfelldur hitamismunur — um 16°C — er á vatninu úr lieitu
og köldu lindunum, sem renna í vatnið austanvert.
2. Alkalinitets- og sýrustigsgildi eru þegar allhá í innrennslis-
vatninu, en sýrustigið hækkar til stórra muna í Mývatni sjálfu og
nær hámarki við útrennslið í Geirastaðakvísl. Þessar breytingar
standa vafalaust í sambandi við gróður plöntusvifs í vatninu.
Koldioxyd-nám plantnanna leiðir til röskunar í jafnvæginu:
2hco- co;-;- + có2 + h2o