Náttúrufræðingurinn - 1970, Blaðsíða 52
194
NÁTTÚ R U F RÆBINGURINN
sem berst úr vatninu út í Laxá. Sé útstreymið í Laxá þekkt, svo
og rennsli Grænalæks, ætti á grundvelli hins mikla mismunar á
kísilmagni volgu og köldu lindanna að vera mögulegt með samtíma
mælingum á rennsli og kísilmagni að reikna út rennsli volgu og
köldu lindanna út í Mývatn og framlag þeiiæa í efnabúskap vatns-
ins. Mismunur á kísilmagni innrennslis- og útrennslisvatnsins að
vori eða sumri ætti liins vegar að veita hugmynd um nettó kísil-
nám þörunganna í vatninu. Væri fróðlegt að bera þá útkomu sam-
an við niðurstöður framleiðnimælinga með C14-aðferðinni.
b. Æskilegt væri að rannsaka ólífrænt fosfat og uppleyst köfn-
unarefnissambönd á mismunandi árstímum og mismunandi stöðum
í vatninu og fá þannig yfirlit um dreifinguna frá einum tíma til
annars.
c. Auk ólífrænna næringarsalta væri fróðlegt að rannsaka lífræn
fosfór- og köfnunarefnissambönd í upplausn, svo og heildarmagn
lífrænna efna.
d. Æskilegt væri að rannsaka uppleystar lofttegundir í vatninu
— aðrar en súrefni — einkum köfnunarefni og koldioxyd. I sanr-
bandi við fiskirækt kynni mettunarstig lindanna með tilliti til
köfnunarefnis að vera mikilvægt. Hugsanlegt er, að lindavatnið
sé yfirmettað af köfnunarefni, þótt það sé undirmettað af súrefni.
e. Fróðlegt væri að kanna grugg, bæði lífræn og ólífræn efni, í
vatninu sjálfu og í afrennsli þess.
f. Rannsóknir á snefilefnum í mismunandi lindum og á mis-
munandi stöðum í vatninu kynnu að veita gagnlegar upplýsingar
m. a. til þess að rekja útbreiðslu hinna ýmsu vatnsgerða.
Loks væri fróðlegt að rannsaka nálæg vatnasvæði og fylgjast
með breytingum á magni hinna ýmsu efna niður eftir Laxá.
Hér hafa líffræðilegar eða lífefnafræðilegar rannsóknir ekki verið
ræddar sérstaklega. Meðal mikilvægustu þeirra eru vafalaust fram-
leiðnimælingar, sem einfaldast væri að framkvæma með C14-
aðferðinni.
HEIMILDARIT
American Public Hcalth Association et al. 1962.
Standard Methods for the Examination of Water and Wastewater. Eleventh
edition. American l’uhlic Health Association, Inc. New York.