Náttúrufræðingurinn - 1970, Page 55
N ÁTTÚ R U F RÆ «I N GIJ R 1 N N
197
Gunnar Jónsson:
Stóra brosma
Urophycis tenuis (Mitchill), syn. Phycis borealis (Sæmundss.)
Við ísland liafa lundizt tvær fisktegundir taldar tilheyra ætt-
kvíslinni brosmur, ]). e. litla brosma, Phycis blennoides og
stóra brosma, Phycis borealis (1. mynd). Litla brosma fannst
hér árið 1903, þegar danska rannsóknaskipið „Thor“ veiddi eina
á 120 metra dýpi í Háfadjúpi í Eyjafjallasjó. Mun vera allmikið
um hana á djúpmiðum allt frá Lónsdjúpi a.m.k. og vestur fyrir
Reykjanes. Stóra brosma veiddist í fyrsta skipti hér við land, svo
sögur fara af, á 110 metra dýpi í Jökuldjúpi í Faxaflóa þann 23.
maí 1908. Bjarni Sæmundsson (1908, 1913) rannsakaði fiskinn og
taldi vera nýja tegund og lýsti henni og gaf vísindanafnið Phycis
borealis, en nefndi hana á íslenzku stóru brosmu. Fisk-
tegund þessi er mjög sjaldséð við ísland og höfðu aðeins fundizt
1. mynd. Phycis blennoides (ofar), Urophycis tenuis (neðar).