Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1970, Side 66

Náttúrufræðingurinn - 1970, Side 66
208 N ÁTTÚRUFRÆÐINGURINN jafnaði Jiærra í lilíðum. — í lynglendinu stirndi hvarvetna á hin fögru, livítu blóm skollabersins (Cornus suecica) í hlíðunum báðum megin dalsins. Innan um vaxa á strjálingi: Barnarót, friggj- argras, hjónagras, brönugrös, liolurt, klukkublóm o.fl. Mikið l)lá- gresi og ögn af sauðamerg. Rjúpustör í lægð nálægt vatninu. — Hlíðin norðan megin Vatnadals er meira grasi gróin og holtagróðri. Hún er grýtt og liggja víða steinar, senr hrunði hafa úr fjallinu. Mikið; af hjónagrasi og reyrgresi í hlíðinni. Mikill burknagróður er og í hlíðunum nálægt Botni, innst í Súgandafirði og keimlíkur Vatnadalsburknunum. Hér vex burkninn aðallega í rökum, snjó- sælum lægðum. Mikið vex og af skollaberjum og lyngjafna í Botni. Dökkasef sést á stangli, skollakambur og fjandafæla norðan ár. Fáeinar, litlar birkihríslur sjást skammt innan við Botn sunn- an megin, en dálítið kjarr vex norðan megin á löngu svæði. — Burknar voru því nær hvergi gróbærir á þessum slóðum í júlílok. Við mynni Engidals í Skutulsfirði vaxa heigulstör og sjávarfitj- ungur við sjóinn og dúnhulstrastör nokkru ofar. LEIÐRÉTTING I grein um jarðsögu Vestmannaeyja í síðasta heí'ti Nfr. minni ég með nokkrum orðum á tilveru brekkubobba á Heimaey. Ingi- mar Óskarsson náttúrufræðingur hefur bent mér á missögn varð- andi latnesk heiti og tegundagreiningu. Þótt þessi missögn snerti lítið það atriði, sem ég var að ræða, joykir mér þó rétt að Jeiðrétta hana. Brekkubobbinn í Eyjum hét áður því latneska heiti, sem ég notaði, Helix hortensis, en er nú kallaður Cepaea hortensis. Hann kemur fyrir frá Eyjafjöllum og að minnsta kosti austur til Mýrdals, og einnig hefur hann fundizt í Núpshlíðarhálsi. Austfjarðabobb- inn, sem mér hafði skilizt að væri afbrigði þess sunnlenzka, enda mjög svipaður honum, er raunar af annari ættkvísl og hefur latneska heitið Helicigona arbuslorum. Einnig í greininni um fjörumó á Garðsskaga í sama hefti ætti nefndur brekkubobbi að lieita Cepaea í stað Helix. Trausti Einarsson.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.