Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1972, Side 60

Náttúrufræðingurinn - 1972, Side 60
48 NÁTTÚRUFRÆÐ INGURINN 3. mynd. Perufísi (Lycoperdon pyri- forme), annar skorinn þvert. í dökkum peru- belgnum má sjá gleypu og gleypusúlu, og ljósa undirgleypuna í peru- hálsinum. Ljósm. H. Kr. Kapillurnar langar, greinóttar, ógataðar, allt að (i it á þykkt, frem- ur litlitlar. Gróin gulbrún, kúlulaga, alveg slétt eða með einunr smá- nabba, oft með dropa í miðju. Mýslisstrengir oft áberandi, einkum ef sveppurinn vex á stubbum. Vex oftast í hópum eða knippum á fúnum og mosavöxnum trjá- stubbum, eða á jörðinni í grennd við þá, stundum einnig á rótum iifandi trjáa og á skógarstígum. Hittist einnig utan skóganna t. d. á gömlum vegum. Perufísið er rnjög vel aðgreint frá öðrum físitegundum, bæði að vaxtarstöðum, útliti og innri gerð. Þó getur jrað stundum líkst mjúk- físi (L. molle) í útliti og vex stundum á sömu stöðum og það, t. d. á skógarstígum. Oftast má þó aðgreina tegundirnar með því að at- huga litinn á undirgleypunni í perustafnum, en smásjárskoðun gró- anna er að sjálfsögðu öruggasta leiðin. Útlit tegundarinnar er nokkuð lrreytilegt eftir vaxtarstöðum. Þau eintök sem vaxa á bersvæði eru oftast dekkri, með grófari og dekkri vörtum en skógareintökin, og sjaldan eins reglulega perulaga. Meg- ineinkenni tegundarinnar eru þó alla jafna mjög skýr. Perufísið er algengt í skógum Evrópu og Norður-Ameríku. í Nor-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.