Náttúrufræðingurinn - 1972, Blaðsíða 82
70
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Meðalungafjöldi var 3,4 á hreiður. í tveimur tilvikum voru
fimm ungar í hreiðri og var það í bæði skiptin í Dalfjalli.
Fjöldi unga, sem yfirgaf hreiður
Hugsanlegt er, að afkoma varpsins hjá fálkum á íslandi sé
breytileg eftir stofnstærð rjúpunnar. Einu prentuðu upplýsing-
arnar um fjölda unga, sem yfirgaf hreiður, er að finna í skrifum
Lewis (1938). Hann segir, að árið 1936 hafi 11 eða 12 ungar verið
í 10 fálkahreiðrum á Vestfjörðum, og hafi ungarnir verið um
fjögurra vikna gamlir, þegar athugunum lauk.
í 12 hreiðrum í Mývatnssveit var vitað um 39 unga, sem komu
úr eggi. Af þessum ungum urðu 29 fleygir, þ. e. 74% eða 2,4 á
hreiður. Af þessum 12 hreiðrum voru tvö (árið 1966 í Dimmu-
borgum og Vindbelgjarfjalli), þar sem ungarnir hurfu, þegar þeir
voru nær fleygir. Að sögn Sverris Tryggvasonar er ekki óhugsandi,
að ungahvarf þetta hafi verið af mannavöldum. í báðum þessum
hreiðrum voru fjórir ungar. Ef þessum tveimur hreiðrum er sleppt
í útreikningum, eru eftir 31 ungi, og af þeim urðu 29 fleygir,
þ. e. 94% eða 2,9 ungar á hreiður. Ungarnir tveir, sem hurfu,
voru í hreiðri í Dalfjalli sumarið 1966. Hurfu þeir báðir af óþekkt-
um ástæðum, er þeir voru innan við vikugamlir.
Mjög er erfitt að fá áreiðanlegar upplýsingar um það, hvernig
ungunum reiðir af og hversu há dánartalan er, eftir að þeir yfir-
gefa hreiðrið. Af 13 ungum úr fjórum hreiðrum voru 12 eftir,
þegar ein vika var liðin frá því að þeir yfirgáfu hreiðrin, og eftir
tvær vikur voru um 10 ungar eftir í grennd við hreiðrin. Athug-
anir mínar benda til þess, að fleygir ungar séu venjulega í grennd
við hreiðursylluna talsverðan tíma eftir að þeir lara úr lneiðri,
og færi sig síðan smátt og smátt í burtu frá hreiðurstaðnum. En
ég hef þó ekki getað fylgzt með ungunum lengur en tvær vikur,
eftir að þeir fóru úr hreiðri. Þessar athuganir gefa til kynna, að
dánartalan var hlutfallslega lág, bæði að því er tekur til unga í
hreiðri og nýfleygra ungfugla.
Þakkarorð
Ég er þakklátur þeim dr. Finni Guðmundssyni og Arnþóri
Garðarssyni við Náttúrufræðistofnun íslands fyrir góð ráð og leið-