Náttúrufræðingurinn - 1972, Blaðsíða 30
18
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Ingólfur Davíðsson:
Fífa (Eriophorum)
Vísindanafnið þýðir „ullberandi" og má til sanns vegar færa, sbr.
líka enska nafnið baðmullargras (Cotton grass) á þessum jurtum. A
norðurlandamálum er fífan kölluð tjarnaull, engjaull, mýraull, pól-
ull — og fípa á færeysku. Blöð fífunnar bera sérstök nöfn — brok,
hringabrok, rauðbroti og rauðbreyskingur. Sýnir þetta að flestir
þekkja fífuna og þykir hún sérkennileg. „Flóatetur fífusund“ o. s.
frv. kvað Jónas Hallgrímsson; en fífan vex einmitt á votlendi og
litar stóra fláka snjóhvíta, þegar líður á sumarið. — Fífan ber blóm
á vorin, í maí — júní á láglendi, en vitanlega seinna til fjalla og
heiða. Blómin eru smá og litdauf og ber lítið á þeim. Fífubreiðurn-
ar líkjast þá stargresi á að líta. En síðan vaxa hin löngu hvítu hár á
aldininu, sem er þrístrend hneta, og eru sviftæki hennar. Hafa marg-
ir séð hneturnar svífandi á hárunum í golunni, þegar líður á sum-
arið. Ef skyndilega hvessir má sjá fífudreif í mýrunum. Þannig berst
fífan langar leiðir og sáir sér fljótt í flögum og öðru opnu, röku
landi, t. d. mógröfum.
Blöð fífunnar eru dágóð til beitar. Þau haldast lengi græn, a. m. k.
neðri hluti þeirra, og næringargildið breytist minna en í mörgum
öðrum beitarjurtum. Fé sækir í mýrarnar og brokflóana á vorin og
dregur græna broknálina upp úr bleytunni. Einnig síðla hausts,
þegar flest grös önnur eru visnuð. Hreindýr eta hina ungu, safaríku
sprota fífunnar með græðgi á vorin, segja Norðmenn. Snemmslegin
fífa þótti hollt fóður, en nú er að mestu hætt að slá engi nema flæði-
engi. Fleiri hafa verið not fífunnar. „Ljósið kemur langt og mjótt,
logar á fífustöngum. Halla kelling fetar fljótt framan eftir göngum."
Þessi gamla vísa segir sína sögu. Fífan var notuð i lampakveiki
forðum allvíða í norðlægum löndum. Fífuhárið var snúið saman og
tvinnað, aðallega í lýsislampakveiki hér á landi. Það var unnið, lesið
og skrifað við skin lýsislampans í þúsund ár á íslandi. Ég man
lýsislampann í fjósveggnum, þá var steinolíulampi kominn í bað-
stofuna. Einstaka kona hér á landi kann enn að snúa fífu í kveik.