Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1972, Side 71

Náttúrufræðingurinn - 1972, Side 71
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURl N N 59 Jón Jónsson: Eldborgir undir Geitahlíð Inngangur Þær eru raunar fleiri en tvær eldborgirnar nndir Geitahlíð austan við Krísuvík, skaxnmt frá mörkum Gullliringusýslu og Árnessýslu, en Stóra- og Litla Eldborg heita þær eigi að síður, og hvor þeirra á sína sögu. Þó nágrannar séu eru þær harla ólíkar um margt. Slóra Eldborg Stóra Eldborg er einhver fegursti hraungígurinn á öllu Suðvest- urlandi hún er yfir 50 m há yl'ir næsta umhverfi og gígurinn er um 30 m djúpur. Borgin er hlaðin úr hraunkleprum og gjalli og hin fegursta ná11úrusmíði. Stóra Eldborg er raunar suðvesturendinn á gígaröð, sem stefnir norðaustur — suðvestur eins og nær allar gígaraðir liér sunnanlands. Sunnan Geitahlíðar er þessi gígaröð aðeins um 350 m löng, en önn- ur gígaröð er norðan við Geitahlíð, uppi á fjallinu, í beinu fram- haldi af þessari og er sú að minnsta kosti eins löng, en gæti raunar liafa verið mun meira, því yngri hraun, kornin ofan af Lönguhlíð hafa þar runnið yfir. Af þeim sökum má nú heldur ekki sjá hversu tnikið hraun hefur runnið frá þessum eldborgum, en sjálfar eru þær ekki stórar. Hafi hraun runnið úr þeim svo teljandi sé, hefur það runnið niður af fjallinu um svonefndan Sláttndal austan við Geitahlíð, en yngri hraun þekja nú það svæði. Sunnan undir Geitahlíð eru gígirnir aðallega tveir, sem hraun hefur runnið úr. Er það Stóra Eldborg sjálf og annar stór gígur alveg við hana norðan megin. Svo eru nokkur gígahrúgöld, sem liggja út frá þeim á beinni línu og enda utan í hlíðinni fyrir ofan. Lítið hraun hefur frá þeim runnið. Megin eldvarpið er Stóra Eldborg og áður- nefndur gígur við hliðina á henni. Frá þeim hafa hraunstraumar runnið, frá Fddborg sjálfri um undirgöng að suðaustan, en kviku- strókar hafa byggt hana upp, en frá hinum gígnum eftir eldrás mik- illi.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.