Náttúrufræðingurinn - 1972, Síða 13
NÁTTÚRUF RÆÐIN G U RIN N
91
innihalda meira en 70% kísilsýru. Annað er smáhraun, lítt áberandi
norðan við Frostastaðavatn. Hitt hraunið er í Hrafntinnuskerjum,
en þaðan hafa verið efnagreind sýnishorn með allt upp í 73,6%
kísilsýru (Bailey & Macdonald 1970). Vegna mikillar seigju hefur
súra hraunkvikan, sem myndaði hrafntinnuhraunin, haft tilhneig-
ingu til að hrúgast upp yfir gosopinu og mynda gúl. Þar sem mikið
hraunmagn kom upp, hefur gúllinn, sem fyrst myndaðist, ekki liald-
ið jafnvægi, heldur hlaupið frarn undan halla og þrýstingi innan
frá. Eftir stendur svo yzti jaðar gúlsins brekku megin við uppvarpið.
Dæmi um þetta sjást í Háölduhrauni og í Hrafntinnuhrauni við tvö
vestustu gosopin. Jaðar gúlsins myndar hálfhring eða boga utan um
sjálft uppvarpið og minnir á venjulegan gígrima. Hann er þó ekki
gerður úr lausum gosefnum heldur úr föstu hrauni.
Súru hraunin hafa hvergi komið upp um eiginlegar gossprungur
eins og títt er um basalthraun, heldur kringlóttar gospípur, sem
reyndar liggja þétt saman í röð með venjulegri sprungustefnu. Við
upptök Námshrauns eru 7 eða 8 einstök uppvörp og 400 m á milli
endanna. Nyrzta smáhraunið liefur ruðzt fram úr djúpri hvilft í há-
skarðinu milli Suður- og Norðurnáms og runnið niður í Frostastaða-
vatn, en vatnsborð þess var þá að líkindum lægra en nú. Mestur hluti
hraunsins er undir vatnsborði, en hraunsvigðurnar mynda sker og
eyjar úti í vatninu. Rétt við suðurlandið er hraunið kýtt saman í háa
brík undan þunga nýs hraunstraums frá næsta uppvarpi við. Þriðja
uppvarpið hefur sent hraunstraum niður að Jökulgilskvísl. Syðstu
uppvörpin hafa veitt upp smáhraunum, sem eru nánast aðskilin hvert
frá öðru. Laugahraun er einnig samsett af smáhraunum frá einum
tíu uppvörpum, sem eru dreifð yfir 2 km langt bil í beinu framhaldi
suðvestur af uppvörpum Námshrauns.
Eitt af ísúru hraununum á Torfajökulssvæðinu finnst í kringum
Grákollu norðan við Frostastaðavatn. Hraun þetta er eins og Grá-
kolla sjálf næstum á kafi í vikri og ösku. Af útbreiðslu þess og yfir-
borðslialla má þó ráða, að það sé úr Grákollu komið. Undir ösku-
og vikurlögum sést, að Grákolla er gerð úr dökku gjalli og kleprum,
sem geta í samsetningu svarað til hraunsins í kring.
Nokkur ísúr hraun finnast vestan við Laufafell (4. mynd). Laufa-
hraun er yngst þeirra og líklega runnið samtímis Hrafntinnuhrauni
og því sögulegt. Syðst í gígaröðinni, sem Laufhraun rann frá, eru þrír
sprengigígar með djúpum vötnum í botni, nafnlausir á kortum, en
heita Grænavatn að sögn heimildarmanns Þorv. Thoroddsens (1959).