Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1972, Side 25

Náttúrufræðingurinn - 1972, Side 25
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 101 lífrænum efnum. Lífheimurinn í vatninu hefur því tiltölulega lítil álirif á það, og eiginleikar þess ákvarðast fyrst og fremst af eðlis- og efnafræðilegum atriðum. Vatnsliturinn er bláleitur eða grænleitur og hin efnafræðilega samsetning er svipuð í öllum dýptarlögum. Þetta hefur meðal ann- ars þá þýðingu, að nægjanlegt súrefni er allsstaðar fyrir hendi, jafnvel niður við botninn. — Það eina, sem breytist með dýpinu í þessum vötnum er hitastigið. Á sumrin er meiri hiti í yfirborði en við botn- inn, á veturna er þetta öfugt. Mismunurinn á hitastigi í yfirborði og við botn minnkar því hærra sem vatnið liggur yfir sjávarmáli og því opnara sem það er fyrir áhrifum vinda. Vindurinn skapar bylgjuhreyfingu, sem stuðlar að blöndun vatnsins og sá hitamismunur sem kann að verða, jafnast fljótlega út. Venjulegast hitnar yfirborð vatna talsvert yfir sumarmánuðina, og ef við nú mælurn hitastigið niður á við í dýpið, þá komumst við að raun um það að hitinn lækkar yfirleitt ekki í réttu hlutfalli við dýpið. Oftast er það þannig, að hitinn helzt nokkuð jafn til að byrja með, en lækkar síðan snögglega. Úr því lækkar hann svo jafnt, þó ekki niður fyrir 4°C, vegna þess að við það hitastig hefur vatn náð hámarkseðlisþyngd sinni og kaldara vatn myndi fljóta upp og blandast. Það dýptarlag, sem hitinn breytist snögglega í, er nefnt hitaskipta- lag og er bæði þykkt þess og lega í dýpinu breytileg eftir aðstæðum hverju sinni, en yfirleitt liggur það á 10—15 metra dýpi og þykkt þess getur verið frá hálfum metra upp í 6—8 metra. Suðvestanlands er algengt, að ekkert hitaskiptalag nær að mynd- ast, vegna þess að vötnin hitna það liægt á vorin, að vindurinn nær með bylgjuhreyfingum sínum að blanda sarnan hlýnandi yfirborðs- vatni og kaldara djúpvatni. Þegar haustar og kólna tekur í veðri, þá lækkar hitastig vatnsins fyrst í yfirborðinu, síðan neðar og neðar, og þetta heldur áfram, unz allur vatnsmassinn er orðinn um það bil 4°C, en úr því kólnar efsta lagið mjög hratt og vatnið getur lagt á einni frostnótt, ef veður er stillt. Það er einmitt vegna þessa, að ís leggur miklu fyrr á grunn vötn, en ]>au, sem dýpri eru. Djúpu vötnin hafa það mikinn vatnsmassa, sem þarf að kólna niður, að þau leggur oft ekki fyrr en í janúar eða jafnvel í febrúar. Stundum leggur þau alls ekki allan veturinn, og

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.