Náttúrufræðingurinn - 1972, Page 27
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
103
dýrasvif (zooplankton). Þetta eru tiltölulega smá dýr, sem eru óháð
botninum og fjörunni, en hafa litla möguleika til þess að komast
áfram af eigin rammleik, og því mjög háð straumum og þeim hreyf-
ingum sem á vatninu verða. Mikill hluti þessara dýra er svo smávax-
inn, að þau verða ekki greind með berum augum, en þau sem tilheyra
krabbadýrunum (Grustacea), verða fáeinir millimetrar að lengd, og
eru greinilega sýnileg í vatninu. Bezt er að láta þau bera við hvítan
bakgrunn ofan í vatninu, ef maður vill skoða þau nánar í sínu rétta
náttúrulega umhverfi. Smákrabbadýrin (Entomostraca) eru stærsti
hluti dýrasvifsins í næringarlitlum vötnum og eru krabbaflær
(Copepoda) og vatnsflær (Cladocera) þeirra mikilvægust. Þessir dýra-
flokkar finnast að segja má í hverju einasta vatni.
Annar mikilvægur flokkur dýra í svifinu eru hjóldýrin (Rotatoria),
en þau eru talsvert smærri en krabbadýrin. f næringarríkum og
menguðum vötnum eru það hjóldýrin sem mynda stærsta hluta dýra-
svifsins. Talsverður munur er á því dýrasvifi, sem finnst í sjó, og því,
sem er í ferskvatni. Meginmunurinn liggur í stærð dýranna, en fersk-
vatnstegundirnar eru smávaxnar, vegna þess rneðal annars, að erfið-
ara er að lialda sér á floti í ósöltu vatni heldur en í sjó.
Þar sem dýr eru ekki háð sólarljósi beinlínis, þá finnst dýrasvifið
einnig fyrir neðan birtumörk vatnsins, og þar lifir Jrað á dauðu
sökkvandi plöntusvifi, gerlum og dauðum, óuppleystum, lífrænum
efnasamböndum (detritus). Þegar svifið deyr sekkur það til botns, og
verður þannig aðaluppistaðan í fæðu þeirra dýra, sem þar lifa og
nefnd eru einu nafni botnverur (benthos).
Sú dýrategund, sem er mest einkennandi meðal botndýranna eru
lirfur rykmýsins (Chironomidae) eða toppflugunnar eins og hún er
einnignefnd. Rykmýið er langalgengast af öllum skordýrum sem lifa
í vatni, hvort sem talið er í fjölda tegunda eða fjölda einstaklinga. Á
kyrrum sumarkvöldum má oft sjá þykk ský af rykmýi í kringum
vatnsbakkana og það er varla til sá staður Jrar sem nokkurt vatn er að
finna, að ekki sé þar rykmý. Allt frá smápyttum upp í stór vötn,
í lækjum, ám, hveravatni, saltvatni, mýrum og jafnvel í ísköldum
jökulpyttum, alls staðar er þessi fluga og lirfur hennar.
Vegna þessarar víðáttumiklu útbreiðslu og magns, er í'ykmýið ein
allra mikilvægasta fæðutegundin fyrir önnur vatnadýr. Fullorðnu
flugurnar taka ekki til sín neina næringu og geta því ekki lifað nema
í 3—4 daga. Kvendýrið verpir eggjum sínum ýmist á steina og blöð
í fjörunni, beint á vatnsyfirborðið eða þá, að hún sleppir þeim á