Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1972, Qupperneq 28

Náttúrufræðingurinn - 1972, Qupperneq 28
104 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN flugi yfir vatninu. Lirfurnar sem úr eggjunum koma er mjög mis- munandi litar eftir tegundum, þær geta verið rauðar, gular, grænar, hvítar, brúnar og jafnvel bláar. Rauði liturinn hjá sumurn tegundanna stafar af haemoglobini í blóði þeirra, sama litarefni, sem gefur blóði spendýranna rauða lit- inn, og flytur súrefnið með sér. Þetta gerir það að verkum, að ryk- mýslirfur geta lifað á stöðum þar sem súrefnisinnihald er lágt. Lirfur rykmýsins lifa í vatninu eitt eða fleiri ár, áður en þær púpa sig. Þegar heitt og þurrt er í veðri, stígur púpan upp á yfirborðið, flugan klekst út og flýgur í burtu eftir nokkrar mínútur, þegar væng- ir hennar liafa náð að þorna og verða stífir. Á þessum fáu mínútum í lífi mýflugunnar hefur fiskurinn mesta möguleika á því að ná henni, enda vakir hann oft mjög mikið á þeim tímum, sem rnikið af flugu er að klekjast út í yfirborðinu. Tóm púpuhylkin verða eftir á vatninu og getur mergð þeirra orðið það mikil að það er eins og strendurnar séu ataðar svartri leðju þar sem þau rekur að landi. Oft er álitið að hér sé um dauða flugu að ræða, en svo er þó ekki. Aðrir flokkar dýra, sem eru einkennandi fyrir botninn eru liðorm- ar (Oligochaeta) og litlar vatnaskeljar (Pisidium). Liðormarnir eru skyldir ánamaðkinum, en ekki nema 1—2 sentimetrar að lengd og eftir Joví mjóir. Þeir halda sig niðri í leðjunni og eru því fremur óað- gengilegir fyrir fiskinn. Vatnaskeljarnar verða ekki nema 2—3 milli- metrar í þvermál, og hafa oftast lítið næringargildi sem fiskafæða. Þessir þrír dýraflokkar, sem ég nú hef nefnt, eru sérstaklega ein- kennandi fyrir djéipt vatn og eiginlega einu dýrin, sem þar finnast. Er nær dregur landi, á grynnra vatni, eykst fjölbreytni dýrategund- anna og það er oft fjölskrúðugt botndýralíf í strandbeltinu eins og áður var minnst á. Á þeim stöðum þar sem ekki er súrefnisskortur við botninn, vegna offramleiðslu á lífrænum efnum, geta botndýrin lifað niður á mikið dýpi. Þannig er þessu farið hérlendis og finnast dýr allt niður á um 100 metra dýpi, en það er mesta dýpi þeirra vatna, sem athuguð hafa verið. Þó er Jrað alltaf, að dýralífið er mjög fátæklegt á miklu dýpi. Magn botndýranna fer eftir framleiðslu vatnsins á lífrænum efnum og stendur nokkurn veginn í réttu hlutfalli við hana. Þess vegna er fjöldi dýra á hverjum fermetra oft notaður sem mælikvarði þegar segja Jrarf til um möguleika vatnsins til Jress að framleiða fisk. Þó ber þess að geta, að fjöldi dýranna er misjafn eftir árstíma, og frá einum stað til annars í sama vatni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.