Náttúrufræðingurinn - 1972, Síða 31
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
107
1. mynd. Skilti við inngang í Yellowstone-þjóðgarðinum.
Furður Yellowstone.
Yellowstone-svæðið liggur landfræðilega nálægt hjarta Banda-
ríkjanna í norðvesturhorni Wyoming-fylkis í Klettafjöllum, þar sem
verða vatnaskil milli heimshafa. Þar ríkir meginlandsloftslag með
hlýjum sumrum en hörðum vetrum, enda liggur mikill hluti
svæðisins í meira en 2000 metra hæð yfir sjó og tindar ná víða
yfir skógarmörk, sem þarna eru í rösklega 3000 metra hæð. Flatar-
mál þjóðgarðsins er nálægt 9000 ferkílómetrar og tekur þannig
yfir ámóta svæði og Vatnajökull. Náttúrufarsleg fjölbreytni er með
ólíkindum, mest á sviði jarðfræði, en einnig er dýra- og gróðurlíf
sérstætt og heillandi.
Klettafjöllin eiga sér myndunarsögu frá lokum miðaldar fyrir
um 70 milljónum ára, þegar setlögin, er áður höfðu myndazt í
sjó, tóku að rísa og raskast við fellingafjallamyndun. Á Yellow-
stone-svæðinu bættist síðar við gífurleg eldvirkni, sem stóð í nær
40 milljónir ára með hléum, og lauk ekki fyrr en á jökultíma. Upp
komu gosefni af ýmsum þeim gerðum, sem við íslendingar könn-