Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1972, Page 32

Náttúrufræðingurinn - 1972, Page 32
108 NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN umst vel við, en líparít er þó langfyrirferðarmest, og þekur það drjúgan hluta yfirborðs og kemur m. a. berlega í ljós í gljúfrum Yellowstone-árinnar. Er nafn þessa landsvæðis talið eiga rót sína að rekja til hins ljósa litar líparítsins (yellow = gulur). Hrafn- tinna er einnig til staðar, þótt ekki sé það víða, og til Obsidian Cliff (Hrafntinnubjarga) sóttu frumbyggjar svæðisins, indíánarnir, sér efni í örvarodda og axir. Líparítgosefnin fylla risastóra öskju eða sigketil, sem myndaðist í geysimiklum hamförum fyrir tæpri milljón ára og er askjan um 65 kílómetra í þvermál. Það er einkum við jaðra hennar, sem nú ólga og krauma liinir ótölulegu hverir Yellowstone, en það voru einmitt þeir, sem svo mjög efldu frægð og ýttu á eítir stofnun þjóðgarðs á þessum slóðum. íslendingar ættu ekki að kalla allt ömmu sína þegar jarðhiti er annars vegar, en þegar ekið er frá einu hverasvæðinu til annars dögum saman og við blasir ólýsanleg fjölbreytni goshvera og leirhvera og alls þar á milli, fallast okkar sannarlega hendur og Geysir gamli í Hauka- dal nægði tæpast til að endurvekja stolt okkar, þótt í fullu fjöri væri. Einn ferðafélaga minna orðaði þetta svo, að safna yrði öllum jarðhita fslands saman á einn blett til að jafnast á við þann hama- gang, ólgu og fjölbreytni, sem víða má sjá og heyra á hverasvæðun- um þarna. í upplýsingaritum stendur, að alls séu hverirnir um 10 þúsund talsins, þar af 300 sívirkir goshverir auk mai'gra stór- kostlegra leirhvera. Innan marka þessa þjóðgarðs er saman kominn langtum meira en helmingur alls þess jarðhita, sem nú leikur laus á yfirborði plánetu okkar. Nafntogaðasti og öflugasti goshverinn í Yellowstone er Old Faithful, sem þeytt hefur vatni og gufustrók reglubundið upp í 40—60 metra hæð frá því athuganir hófust fyrir lieilli öld og líða aðeins 66 mínútur að jafnaði milli gosa, sem vara í nokkrar mínútur. Aðrir hverir vatnsminni gjósa jafnvel enn hærra, og eng- inn þeirra er öðrum líkur um hegðan og útlit. Ár og stór stöðuvötn prýða víða landslagið, og á bökkum þeirra eða úti í þeim er jarðhiti og goshverir. Fuglalíf er þar fjölskrúðugt, enda eru tegundir varpfugla þarna um 200 talsins auk annarra, sem viðkomu hafa. Stangaveiðar eru heimilaðar í ám og vötnum á vissum stöðum, en undir eftirliti. Um 85% af flatarmáli þjóðgarðsins eru skógi vaxin, barrtré og þá fyrst og fremst stafafura (Pinus contorta) ríkjandi, en af lauf- trjám sést helzt blæösp (Populus tremuloides), náskyld þeirri sem

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.