Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1972, Síða 42

Náttúrufræðingurinn - 1972, Síða 42
116 NÁTTÚRUF RÆ ÐINGURINN snjó, sem liggur að mestu á landi og hreyfist eða sýnir merki þess að hafa hreyfzt. í þessari skilgreiningu er tekið fram, að jökull liggi að mestu leyti á landi til aðgreiningar frá liafís og að hann lrafi hreyfzt til þess að skilja hann frá fönnum. Jöklar myndast þar, sem veður- far er slíkt árum saman, að snjóa setur meir að vetri en nær að leysa að sumri. Svo þykk verður snjóþekjan, að snjórinn nær að þéttast og ummyndast í jökulís, sem loks tekur að hreyfast undan eigin þunga. Þegar snjór fellur til jarðar, hvarflar varla að nokkrum manni, að þar sé á ferð öflugt tæki til landrofs. En þessi snjór getur ummynd- azt og orðið að jökulís, sem ásamt bergmolum við jökulbotn myndar þann sandpappír, sem mest hefur mótað land okkar. Strax og snjór fellur hefst ummyndun hans, vegna þess að snjór myndaður í lofti er óstöðugur við aðstæður á jörðu niðri. Hinir sexstrendu snjókristallar verða smám saman hnöttóttir og snjór sígur saman. Fer þetta einkum fram við flutning vatnseims. Auk þess hripar bræðsluvatn niður og frýs aftur meðan frost er í snjólaginu. Við farg nýrra árlaga sígur snjórinn enn frekar saman, loft pressast smám saman út, stórir krist- allar myndast, loftbólur lokast og jökulís hefur myndazt. En enn vantar þessa fönn hreyfingu, til þess að kallast jökull. Öld eftir öld, vetur eftir vetur leggst snjór á jörð og skefur í dæld- ir, hið ísi þakta svæði breikkar og þykknar með hverju ári, og síðan fer það að hreyfast samfellt út frá hábungu, streyma þjált ekki ólíkt þykku deigi undan eigin þunga, ekki aðeins niður halla, heldur einn- ig yfir flatlendi og að vissu marki upp ávalar fjallshlíðar. Venjuleg hreyfing jökla fer fram á tvennan hátt. í fyrsta lagi veldur farg jök- ulsins formbreytingu á ísnum, svo að hann sígur áfram alllíkt þykku deigi. Sú hreyfing er einkum háð þykkt jökulsins, halla yfirborðs og hitastigi íssins. Því meiri sem ísþykktin er, hitastig og halli yfirborðs, því hraðar fer jökullinn. Brattir hraðskreiðir daljöklar eru hins vegar þynnri en hægfara flatari jöklar. Sé borað í jökul og fylgzt með breytingum á halla borholunnar sést, að liraði jökulsins er mest- ur við yfirborð, en við botn minnkar hann allhratt. Þá er hreyfing jökla venjulega minni við jaðrana en miðbik þeirra þar, sem þeir eru þykkastir. Hinn þáttur hreyfingarinnar er skrið eða rennsli jökuls eftir botni sínum, en hraði þess getur verið allt að helmingi yfirborðs- liraða jökulsins. Vatnsrennsli undir jökli iirvar skrið þeirra, og skýrir það, hvers vegna hreyfing jökla vex oft við miklar rigningar og er að jafnaði meiri að sumri en vetri. (Sjá 1. mynd). Ég get ekki skilið svo við frásögn um hreyfingu jökla, að ekki sé

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.