Náttúrufræðingurinn - 1972, Blaðsíða 55
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
129
gulmöðru. Bláklukka og geitla sjást hér aftur á móti varla og lyng-
tegundir svo til eingöngu í jöðrum skógarins.
Bjarkirnar í Bæjarstaðaskógi eru margar beinvaxin og fögur tré,
og þorrinn af þeim 7—8 m á hæð, 10 m tré eru þó nokkuð víða
og 12—14 m háar hríslur eru sagðar vaxa þar. Umhverfis Bæjar-
staðarskóg og inn með allri vesturhlíð Morsárdals og út eftir brekkum
Jökulfells er að vaxa upp ungskógur, að vísu mishár ennþá en víða
allgróskulegur, og bendir allt til þess, að eftir nokkra áratugi verði
þarna kominn samfelldur skógur allt innan frá Kjós og út í Jökul-
fell, frá sandinum og upp í um það bil 350 m hæð, og verða
nokkrar gamlar og myndarlegar skógartorfur í neðanverðum
brekkum Jökulfells þá ekki lengur jafn einmana og þær eru nú.
Og jafnvel niðri á innanverðum Skeiðarársandi, skammt frá Bæjar-
staðarskógi að vestan og Morsáraurum að norðan, er að vaxa upp
dálítið birkikjarr.
Réttargil við Bæjarstaðarskóg er ekki síður fagurt og gróðurinn
þar blómlegur en í bæjargiljunum við Skaftafellsbæina, þó minna
sé um það talað. Þar vex bæði birki og reyniviður, og er mörg
hríslan orðin gömul og virðuleg, en einnig mikið af geitlu og öðru
blómgresi.
Skammt uppi í hlíðinni vestan neðanverðs Fúsagils eru heitar
laugar og renna frá þeim lækir niður á sand. Umhverfis laugarnar
og lækina vaxa skriðlíngresi (Agrostis stolonifera), lindasef (Juncus
bufonius), laugasef (Juncus articulatus), blákolla, mýradúnurt
(Epilobium palustre), lindadúnurt (Epilobium alsinifolium), blóm-
sef (Juncus triglumis), hnúskakrækill (Sagina nodosa) og mýrasauð-
laukur. Milli lækjanna þarna eru líka einkar fallegar valllendisbrekk-
ur, þar sem mest ber á skarifífli, mýrasóley (Parnassia palustris) og
blákollu.
Ofanverðar hlíðar fjallanna milli Morsárdals og Skeiðarárjökuls
eru mjög skriðurunnar og gróður þar enn strjálli og fábreyttari en í
fjöllunum upp frá Skaftafellsheiðinni.
Að lokum ber að geta þess, að Skaftafellsland nær fram allan
Skeiðarársand og út að sjó, en þar vex nokkuð af melgrasi (Elymus
arenarius) og fjöruarfa (Honkenya peploides) og jafnvel fleiri
strandplöntum, þó hvergi sé þar um samfelldan gróður að ræða.
9