Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1972, Page 64

Náttúrufræðingurinn - 1972, Page 64
138 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Hólmshraun V. Síðast í röð þessara hrauna er Hólmshraun V. Það liggur ofan á Hólmshrauni IV vestur af Selfjalli, en klofnar þar á því, og fellur svo í tveim kvíslum báðum megin við það. Vestri kvíslin endar rétt sunn- an og austan við skála þann, sem „Nordmannslaget“ hefur í Heið- mörk, og áður er minnst á. Önnur kvísl úr sama hrauni er svo nokkru vestar, en sú kvísl nær aðeins á einum stað fast að girðingunni sunnan við Heiðmörk. Austasta kvíslin hefur svo fallið norður með Selfjalli að vestan og alla leið niður í Lækjabotna. Þetta er mjór hraunstraumur, sem fallið hefur upp að fjallinu eftir lægð, sem myndazt hefur milli þess og eldri hraunstrauma. Svo virðist, sem þetta sé yngst allra hraunanna á svæðinu milli Þríhnúka og Hákolls í Bláfjöllum, þó ekki verði það fullyrt að svo stöddu. Sé það hins vegar rétt sýnist og líklegt, að það sé komið úr stuttri gígaröð vestan undir Kóngsfelli. Aðalgígirnir eru tveir, en röð af smágígum liggur upp í fellið að norðvestan. Hrauntraðir stórar liggja frá þessum gígum suður fyrir Kóngsfell og austur með því að sunnan. Þá hefur hraunið fallið norður milli Kóngsfells og Rjúpnadals- hnúka, en önnur kvísl austur að Bláfjöllum, og er það yngsta hraun- ið sem endar í allhárri brún vestur af Vífilsfelli og á kortinu er nefnt Vífilsfellshraun. Greinilegt er, að hraunið tir gígunum við Kóngs- fell er yngra en hraunin úr Eldborg við Drottningu, en mjög líklega er eitthvað af Hólmshraunum komið úr þeim gíg. Hólmshraun V er gráleitt, fremur fínkornótt basalthraun. Sam- setning þess er: 1 2 Meðaltal Plagioklas 43,19% 39,30% 41,2% Pyroxen 42,24% 49,80% 46,0% Ólívín 5,96% 3,94% 4,9% Málmur 8,59% 7,74% 8d% Summa 99,98% 100,78% Taldir punktar ..................... 419 542 Þunnsneið nr........................ 180 181 Eðlisþyngd 2,78. Eins og áður hefur lauslega verið drepið á eru margar eldstöðvar milli Bláfjalla og Lönguhlíðar. Hafa hraun frá þeim flestum runnið

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.