Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1974, Page 51

Náttúrufræðingurinn - 1974, Page 51
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 45 Ingólfur Davíðsson: Tveir alkunnir runnar I. „Einir hvassa barrið ber“ Einir (Juniperus communis) er eina íslenzka tegundin, sem telst til barrtrjáa. Hann er sýprisættar, eins og sýpris og lífviður (Thuja), sem flutt eru inn sem jólagreinar og í kransa. Einir vex hér allvíða í kjarri, mólendi, lautarbörmum og víðar. Hann er jarð- lægur eða kræklóttur, sjaldan meir en 50 cm Itár, sígrænn runni með oddhvössu, stingandi barri. Sitja barrnálarnar þrjár og þrjár í krönsum og lifa 3—7 ár. Þær eru rennulaga og blágrænar á efra borði, en gljáandi dökkgrænar neðan og eru með harpixgöngum. Börkur á eini er dökkbrúnn með allmiklu basti og flagnar af í ræmum. Einir er ven]ulega sérbýlistegund, þ. e. karl- og kvenblóm eru ekki á sömu hríslu. Blómin myndast síðsumars og springa út næsta vor. Þegar karlrunnarnir blómgast gefa þeir frá sér mikið gulleitt frjóduft, sem berst fyrir vindi. Kvenblómakönglarnir líkj- ast fyrst laufbrumum að útliti, en verða kjötkenndir með aldrinum og líkjast þá beri. Einiber eru tvö ár að þroskast. Þau eru græn fyrra árið, en á seinna sumrinu verða þau að lokum blásvört með vaxlagi yzt. Á kvenrunnum sjást því olt á haustin bæði ung, græn ber og þroskuð, dökkbláleit. Fuglar, t. d. rjúpa og þrestir, sækja í berin og verður gott af „aldinkjötinu“, en fræin ganga ómelt niður af þeim og dreifast þannig. Einiviður er þéttur og harður. Á gömlum hríslum er viðurinn oft mjög snúinn. Barrið ilmar af harpix. Rætur einis eru útbreidd- ar en vaxa fremur grunnt. Einir vex hægt en getur orðið nrjög gamall, jafnvel mörg hundruð ára. Erlendis er einirinn oft stór runni, sbr. hina alkunnu vísu: „Göngum við í kringum einiberja- runn“, en sá siður mun vera ævaforn. Sum afbrigði einis verða jafnvel allstór, 10—17 m há tré á Norðurlöndum og bolurinn 2 m að ummáli eða meir. Hin hávöxnu einitré eru oft með súlulaga
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.