Náttúrufræðingurinn - 1974, Qupperneq 71
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
65
Hraunið hjá Randarhólum er mest vindrofið og eru torfur þar
með mismörgum öskulögum. Besta sniðið er í fuglaþúfu um 150 m
norðvestur af Syðsta-Randarhól. Þar eru a. m. k. 7 öskulög, þrjú
fornu, ljósu Heklulögin frá því fyrir íslandsbyggð: H,.. (2900 ára),
H4 (4500 ára) og HB (7100 ára); aldurinn samkvæmt nýjustu leið-
réttingum á C14-aldri (Sigurður Þórarinsson, 1971). — Um 25 crn
undir H5 er kolsvart, fínkornótt basaltöskulag, 3—5 cm þykkt, sem
finnst í sunrum sniðum í Öxarfirði og Kelduhverfi, en liggur þarna
víða sem seig skán á uppblásinni klöpp. Hef ég kallað það X„ og
álít það rösklega 8000 ára gamalt (sjá síðar). Hér er þó víða undir
því 5—20 cm þykkur jarðvegur, en þess ber að gæta, að hér í
nánd Randarhóla er víða óeðlilega þykkur jarðvégur milli ljósu
Heklulaganna, sem bendir á fornan uppblástur. En eftir þessum
jarðvegsstabba á hrauninu hlýtur Randarhólahraun að vera a. m. k.
8500—9000 ára gamalt.
A hraunspildunni við gljúframynnið norðan Vestaralands er
nauðaþunnur jarðvegur, en á hæstu bungunni er smátorfa úr þykk-
um jarðvegi með 10 öskulögum. Þar eru áðurnefndu Heklulögin
fornu og undir H5 um 12 cm af rauðri mélu, þá X„, kolsvarta
basaltaskan, um 3 cm þykk, og loks um 6 cm mélulag ofan á hraun-
inu.
Ef gert er ráð l'yrir 0,10 mm árlegri meðalþykknun jarðvegsins,
áður en H5 féll (sbr. Sigurður Þórarinsson, 1958; Guttormur Sig-
bjarnarson, 1969), en það er ríflegt, enda sandar nærri, verður X„
um 8300 ára og hraunið undir um 8900 ára. Svipað er að segja um
Rauðhóla (Hljóðakletta), þar sem linna má H3 og H4. Með sama
reikningi ættu þau eldvörp að vera upp undir 9000 ára.
Niðurstöðurnar af þessu verða þá þær, að Randarhólar, Rauð-
hólar og Hljóðaklettar og svo þessir dökku hrauuflákar í gljúfrun-
um séu kringum 8500—9000 ára gamlir. Nálægð uppblástursvæða
og áfok snemma á nútíma getur þó gert strik í reikninginn, lækk-
að aldurinn a. m. k. um nokkur hundruð ár.
Stíflur og flóð
Það er sýnilegt, að stíflur og flóð hafa í stórmiklum mæli rnótað
Jökulsárgljúfur. Þar er mesti ljöldi aflagðra farvega og flóðfarvega,
utan eða ofan hins eiginlega árgljúfurs, svo og voldugir malarhjall-
e