Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1974, Page 107

Náttúrufræðingurinn - 1974, Page 107
N ÁTTÚ RUFRÆÐINGURINN 101 athyglisgáfu sína og glöggskyggni á mörgum sviðum í ríki móður náttúru. Af hátterni skúmsins á varpstöðvum hans hér við Bakkahlaup og Jökulsá er aftur á móti nokkuð aðra sögu að segja en þá, er Hálfdán þekkir, og sýnir hún, svo ekki verður um deilt, hve fuglar eru fljótir að breyta aðferðum sínum við fæðuöflun, þegar skortur er á þeirri fæðu, sem þeim er eðlilegust. Og hefst nú samtalið: „Það er ætlun mín, Guðmundur, þar sem þú hefur gefið ýmsu nánar gætur, að biðja þig að segja mér eitthvað af kynnum þínum af skúmnum, sem faðir þinn fylgdist svo vel með, þegar hann ann- aðist æðarvarpið hjá ykkur í Lóni.“ „Það er þá fyrst að segja, að tneðan ég man eftir mér, en ég er fæddur 20. ágúst árið 1898, hefur skúmurinn alltaf verið viðurloða við varpið hér og stundum drepið fullorðna fugla, bæði blika og kollur. Og þetta gerir hann enn. En svo gerist það árið 1968, að hann rænir hreiður. Og það vex svo, að í fyrra mun hann hafa rænt um áttatíu hreiður á svonefndum Flæðum, sem eru norðan við Lónin. Þar drap hann fyrst sex kollur, því ummerkin leyna sér ekki. Það er afkastamikill fugl, þegar hann er í vígahug, enda rammefldur." „Hvernig hagaði hann sér við að drepa kollurnar?“ „Það sá ég nú ekki, við hreiðrin, en geri ráð fyrir því, að það liafi verið eitthvað svipað og þegar hann kæfir þær. Venjulega drepur hann þær þannig, þegar þær eru yfirbugaðar, að hann bítur utan um höfuðið á þeim af slíku afli, að nefkrókurinn gengur inn í heila. Ég hef líka oft séð þá hjálpast að við að yfirbuga þær, og það allt upp í fjóra saman. Og þegar þeir sækja að þeim, svona margir í einu, þá koma þær engum vörnum við. Þeir halda þessu líka áfram með eggjaránið. Þeim er alveg sama, hvort eggin eru ný eða farin að unga. Þeir éta bara ungan úr þeim, hversu þrosk- aður sem hann er. Aftur á móti er það svo með hrafninn, að hann étur mjög lítið, nema á meðan eggin eru glæný.“ „Bera krummar þau líka ekki oftast burtu?“ „Jú, það gera þeir.“ „En sást þú skúmana ræna hreiðrin?" „Já. Svo þekki ég líka auðveldlega, hvort það er skúmur, hrafn eða kjói, sem rænir þau. Skúmurinn fer svo illa með dúninn, því hann brýtur eggin í hreiðrunum, svo skurnið lendir saman við
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.